Eintak - 24.02.1994, Page 15
Herluf Clausen
Útlit er fyrir að fall „bankastjórans“ í Grjótaþorpinu, Herlufs Clausens, verði hátt. Fyrir fjórum árum var hrein eign hans metin á rúman einn
milljarð króna. Nú eru lánadrottnar farnir að ganga að honum og alls óvíst er um frekari fyrirgreiðslu íbönkum. Ef hún fæst ekki myndi
það ríða fjármálaveldi hans að fullu.
Lánadrottnarnir loka
fyrír frekarí fyrírgreiðslu
Stærstu lánadrottnar Herlufs eru
Sparisjóður Reykjavíkur og ná-
grennis, Landsbanki Islands, Bún-
aðarbanki íslánds, Sparisjóður vél-
stjóra og íslandsbanki. M.ö.o. eiga
allir stærstu bankatnir og spari-
sjóðirnir hagsmuna áð gæta, þeir
þrír fyrst töldu þó sínu mestra. Stór
hluti veðbanda þessara aðila í eign-
um Herlufs eru tryggingabréf.
Bankarnir hafa krafist þeirra gegn
því að kaupa af honurn viðskipta-
kröfur. Þegar skuldararnir standa
síðan ekki í skilum er sótt að Herluf
sem útgefanda víxlanna.
Þegar rýnt er í veðsetningar á
fasteignum Herlufs sést greinilega
hvað er að ríða honum að fullu.
Ríflega helmingur þeirra, hátt í 80
milljónir króna, eru tryggingabréf.
SPRON á 46 milljóna króna veð í
fasteignum Herlufs og Landsbank-
inn rúmar 29 milljónir króna en
þar er um eitt tryggingabréf að
ræða frá því snemma í nóvember
síðastliðnum. Búnaðarbankinn á
28,5 milljóna króna veð, Sparisjóð-
ur vélstjóra 11,4 milljónir, og Is-
landsbanki 7 milljónir.
Minni lánadrottnar eru fjöl-
margir og má þar nefna Fjárfesting-
arfélagið Skandia hf., Hildiberg hf.
sem er raunar í eigu Herlufs sjálfs
o.fl., Guðjón Á. Jónsson, Iðnlána-
sjóð, Áfengis- og tóbaksverslun rík-
isins og viðskiptafélaga hans, Krist-
ján Knútsson.
Kristján Knútsson segir það eðli-
lega kröfu hjá bönkuhum að fara
fram á að jafn umsvifamikill maður
og Herluf leggi fram tryggingabréf.
Aðrir heiniildarmenn eintaks
segja hins vegar að það sé til marks
um þær áliyggjur sem bankarnir
hafi af stöðunni, enda hefur útlána-
verðsins fyrir 2. mars ella fellur
húsið í hlut íslandsbanka.
Brattagata 3b, þar sem höfuð-
stöðvar fjármálaveldis Herlufs eru
til húsa, er metið á 19 milljónir
króna. Laugavegur 95 er metið á
tæpar 65 milljónir króna. Iðnaðar-
húsnæði við Höfðatún 10 á tæpar
24 milljónir og íbúð við Blöndu-
bakka 10 á rétt innan við 9 milljón-
ir. Allar eru þessar eignir veðsettar í
topp.
Umsvifamikill fyrir-
tækjarekstur en lána-
starfsemin kjarni veldis-
ins
Kjarninn í starfsemi Herlufs hef-
ur alla tíð verið heildverslunin
Herluf Clausen jr. & Co. sem hefur
aðsetur í gömlu húsi í Grjótaþorp-
inu. í nafni þess fyrirtækis, sem er
einkafirma, hefur hann stundað
lánastarfsemi og aðra peningaum-
sýslu. I raun hefur hann rekið eins
konar banka í Grjótaþorpinu og
velt á við minni lánastofnanir í
landinu. Hann hefur keypt víxla og
skuldabréf fyrir háar upphæðir
með miklum afföllum og sömu-
leiðis greiðslukortanótur. Oft kom
upp kvittur um að Herluf stundaði
okurlánastarfsemi áður en vextir
voru gefnir frjálsir. Gekk það svo
langt að hann var ákærður fyrir
hlut sinn í okurlánamálinu svokall-
aða eftir miðjan síðasta áratug en
var sýknaður. .
Erfitt er að henda reiður á öllum
þeim fyrirtækjum sem Herluf hefur
tengst og það væri að æra óstöðug-
an að reyna að telja þau upp. Oft
hefur málum verið háttað þannig
að hann hefur fengið ítök í fyrir-
tækjum þegar viðskiptakröfur hafa
ekki fengist greiddar og selt svo
sinn hlut aftur.
Hann hefur átt einn eða með
öðrum fjölda tískuverslana, eins og
Sér, Espirit, Poseidon í Keflavík og
fjölda annarra. í dag á hann herra-
fataverslunina Blazer í Kringlunni
en mjög hefur dregið úr umsvifum
hans á þessu sviði undanfarin ár.
Hann kom einmitt undir sig fótun-
um með lánveitingum til kaup-
manna í tískuverslun sem þurftu
lán til skamms tíma til að leysa vör-
ur úr tolli. Sú saga er rakin annars
staðar í opnunni.
Herluf hefur einnig verið um-
svifamikill í veitingahúsarekstri. I
dag á hann Café Óperu og Café Ro-
mance við Lækjargötuna. Þá á
hann hlut í Vínlandi hf. með Birgi
Hrafnssyni, en það fyrirtæki hefur
umboð fyrir nokkrar vinsælar
rauðvínstegundir, eins og Chianti
Ruffmo og Mouton Cadet, þýska
bjórinn Holstein og Bells viskí.
Birgir, sem er framkvæmdastjóri og
prókúruhafi fyrirtækisins, fullyrti í
samtali við EINTAK að rekstur Vín-
lands gengi vel, enda væri það með
öllu óháð öðrum rekstri Herlufs.
BH framtak hf. er einnig í eigu Her-
lufs og Birgis., auk Brynjólfs Bjark-
an. Tilgangur fyrirtækisins eins-og
það er skilgreint í hlutafélagaskrá er
meðal annars tónleikahald og það
stóð að komu nokkurra erlendra
hljómsveita hingað til lands, m.a.
Gypsy Kings.
Fyrir nokkrum árum fór Herluf
síðari að hasla sér völl í sjávarút-
vegi. Fyrir fimm árum keypti hann
Pólar-Frost í Hafnarfirði. Þá átti
hann hlut í Fiskvinnslustöðinni
Hlunnum en hún var úrskurðuð
gjaldþrota um mitt síðasta ár.
Heimildir EINTAKS herma að
Herluf hafi dælt miklum peningum
í fyrirtækið og því tapað umtals-
verðum fjármunum með gjaldþrot-
inu. Auk þess er sagt að hann hafi
ætlað að styrkja ímynd sína í við-
skiptaheiminum með því að taka
þátt í sjávarútvegi en gjaldþrotið
hafi komið í veg fyrir það.
En þótt Herluf hafi átt ítök í
mörgum fyrirtækjum á margvísleg-
um sviðum þá hefur lánastarfsemin
verið kjarninn í kaupsýslu hans.
Leið Herlufs Clausens til auðlegðar
Fallið hátft eftir
ævintýralegan
uppgang
Herluf Clausen hefur víða
komið við á viðskiptasviðinu frá
því hann stofnaði heildverslunina
Herluf Clausen jr. & Co. fáeinum
mánuðum eftir að hann lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólan-
um í Reykjavík árið 1964. Það fyr-
irtæki hefur verið burðarstoðin í
fjármálaveldi hans allt fram á
þennan dag.
Ýmsar goðsagnir hafa myndast
í kringum Herluf enda lætur hann
lítið á sér bera og hefur ekki rætt
við fjölmiðla í meira en tuttugu
ár. Sagt er að hann hafi „hafist
upp á dugnaði", sé „vinnusamur
með afbrigðum" og „vinnan sé
honum allt“. Gripið hefur verið til
slíkra frasa í umfjöllun um hann
þar sem erfitt hefur verið um vik
að afla nákvæmra upplýsinga um
manninn og starfsemi hans.
Hvað svo sem um hann má
segja verður eitt þó ekki af Herluf
skafið og það er hugkvæmnin.
Hann hefur alla tíð verið glöggur
á nýja möguleika í viðskiptum,
sérstaklega innflutningi. Þannig
græddi hann vel á innflutningi á
steiktum lauk, dönskum tertu-
botnum og sígarettuhylkjum til
að vefja vindlinga snemma á 8.
áratugnum, svo dæmi séu tekin.
Hann efnaðist þó ekki svo um
munaði fyrr en hann hóf lána-
starfsemi og ýmiss konar fésýslu,
fór að láta peningana vinna fyrir
sig eins og stundum er sagt. Mestu
umsyifm voru í tengslum við fjár-
mögnun á innflutningi fyrir tísku-
verslanir og fjölda annarra fyrir-
tækja. Þær reglur voru í gildi að
vörur fengust ekki leystar úr tolli
nema sýnt hefði verið fram á
greiðslu á þeim til seljandans.
Herluf lánaði þá fé gegn endur-
greiðslu einum eða tveimur mán-
gjöfinni breytt þannig að ekki
þurfti lengur að sýna frarn á að
vara hefði verið greidd áður en
hún væri leyst úr tolli. Umsvif
Herlufs á þessum vettvangi dróg-
ust þá verulega saman.
En þá hafði hann yfir svo digr-
um sjóðum að ráða að hann gat
veitt stórum fyrirtækjum þjón-
ustu framhjá bankakerfmu. Fræg
er til dæmis sagan af því að hann
hafi lánað Hagkaupi 300 milljónir
króna þegar Ikea-verslunin var
opnuð. Þá jók hann kaup sín á
víxlum og skuldabréfum með af-
föllum og sömuleiðis greiðslu-
kortanótum. Þessi lánastarfsemi
var orðin svo umfangsmikil að
farið var að tala um Herluf sem
„bankastjórann" í Grjótaþorpinu.
Veldi Herlufs reis sennilega
hæst undir lok síðasta áratugar.
Árið 1988 var hann talinn þriðji
ríkasti Islendingurinn af tímarit-
inu Frjálsri versluti á eftir Þor-
valdi Guðmundssyni í Síld og
fiski og Pálma í Hagkaupi. Tíma-
ritið mat eignir hans á bilinu 1,5 til
2,0 milljarða króna en þar sem
ýmsar þeirra þóttu ótryggar var
talan færð niður í milljarð. Á nú-
virði jafngildir sú upphæð nálægt
1,5 milljarði.
Þá var Herluf skattakóngur Is-
lands árið 1990 en heildarálagn-
ingin nam 25 milljónum. Hann lét
áætla skattana á sig og virðist hafa
verið ánægður með útreikninga
skattyfirvalda því hann sá ekki
ástæðu til að kæra niðurstöðuna,
eins og altítt er þegar rnenn láta
áætla á sig.
Síðustu árin hefur Herluf verið
áberandi í veitingahúsarekstri og
hefur í nokkur ár átt eitt vinsæl-
asta veitingahús landsins, Café
Óperu á horni Lækjargötu og
BRATTAGATA 3B
Höfuðstöðvar fjármálaumsvifa Herlufs eru í Bröttugötu 3b í
Grjótaþorpinu. Sú húseign sem er metin á 19 milljónir króna er
veðsett upp í topp, eins og aðrar fasteignir á hans nafni.
uðum seinna. Mörg fyrirtæki
voru tilbúin til að greiða svimandi
vexti af þessum lánum og varlega
áætlað gáfu slík viðskipti af sér
200 prósent ársvexti. I sumum til-
vikurn voru vextirnir þó mun
hærri. I gegnurn þessa starfsemi
eignaðist Herluf hlul í íjölmörg-
um tískuverslunum, sérstaklega
við Laugaveginn, þegar skuldu-
nautar hans gátu ekki staðið í skil-
um. Haít var í flimtingum að rétt-
ast væri að kalla götuna Herlufsst-
rasse.
Fyrir fjórum árum var tollalög-
Austurstrætis. Þá hefur hann ver-
ið umsvifamikill í víninnflutningi.
Um tíma hugðist hann hasla sér
völl í sjávarútvegi og keypti stönd-
ug fyrirtæki í þeim geira og á nú
Pólar-Frost í Hafnarfirði.
Það sem er að verða honum að
falli núna er þó fyrst og fremst
lánastarfsemin. Tapaðar við-
skiptakröfur skipta tugum ef ekki
hundruðum milljóna króna. Leið
hans til auðlegðar var í gegnum
lánastarfsemi sem nú er á góðri
leið með að gera fjármálaveldi
hans að engu. ©
tap bankanna stóraukist á síðustu
árum. Auk þess bendir sú stað-
reynd að Herluf þurfti að leggja
fram tryggingabréf upp á tæpar 30
milljónir í Landsbankanum undir
lok síðasta árs og annað upp á 20
milljónir hjá SPRON til þess að
bankarnir vilji hafa vaðið fyrir neð-
an sig.
Áhyggjur stjórnenda bankanna
eru í dag orðnar það rniklar að þeir
eru farnir að efast um að Herluf
standi af sér þessa holskeflu þótt
hann hafi sopið margan sjóinn áð-
ur. Það er að minnsta kosti ekki
háttur viðskiptabankanna að veita
mönnum víðtæka lánafyrirgreiðslu
skömmu eftir að þeir selja íbúðar-
húsið ofan afþeim.
Það þarf því mikið að koma til
svo að íjármálaveldi Herlufs hrynji
ekki til grunna.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náðist
ekki samband við Herluf Clau-
sen.O
FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1994
15