Eintak - 24.02.1994, Page 34
Fimmtudagur
P O P P
Bubbi Morthens er á Tveimur vinum, einn
með gítarinn sinn eins og hann er bestur. Þaö
verður ábyggilega margt um manninn á Tveim-
ur vinum í kvöld því Bubbi á alltaf sinn trausta
aðdáendahóp.
BAKGRUNNSTÓNUST
Papar ætla aö skemmta gestum á Café Amster-
dam af sinni alkunnu snilld.
Kaffihúsatríóið er á Hressó. Þekktastur með-
lima tríósins er Guðmundur Steingrímsson son-
ur fyrrverandi forsætisráðherra og væntanlegs
Seðlabankastjóra. Guðmundur þenur nikku á
meðan félagar hans slá á gítar- og kontrabassa-
strengi.
UPPÁKOMUR
Hreyfimyndafélagið sýnir hina nafntoguðu
bíómynd Peters Boganovich, The Last Picture
Show, í Háskólabíói klukkan 19.00.
Sköllótta tromman heldur sína árlegu söng-
skemmtun á veitingastaðnum 22. Þeir sem
’ koma fram eru DR. Fritz, Stella, Gummi, Kokkur
Kyrjan Kvæsir, R.I.G. Veda 3 og Inferno 5.
Hvenær var mönnum
bannað að hafa skoðan-
ir? Af hverju má Hrafn
Bragason ekki skamma
lögmenn sem standa
fyrir tilefnislausum kær-
um á dómsmálum, sem
eru annað hvort glötuð
vegna málstaðar um-
bjóðendanna eða slæ-
legri vinnu lögmannanna
í héraði? Er það vegna
þess að hann skrifaði á
pappír í eign Hæstarétt-
ar? Og af því að Arthúr
Björgvin var rekinn fyrir
að nota bréfsefni Ríkis-
útvarpsins? Sem aftur
var rekinn af því að
Hrafn Gunnlaugsson var
rekinn fyrir að hafa
skoðanir og þvi mætti
Arthúr ekki heldur hafa
skoðanir. Má enginn op-
inber starfsmaður hafa
skoðanir? Það er víst
einn opinber starfsmað-
ur fyrir hverja tvo i
einkageiranum, allavega
í Reykjavik. Samkvæmt
því á þriðji hver maður í
bænum að þegja.
Skemmtunin hefst klukkan 22.00 og veröur
stemmningin án efa djöfulleg.
L E I K H Ú S
Blóðbrullaup á Litla sviði Þjóöleikhússins kl.
20:00. Meistaralega gott verk eftir Lorca.
Eva Luna er sífellt á Stóra sviði Borgarleik-
hússins kl. 20:00. Uppselt nærri því öll kvöld.
ÍÞRÓTTIR
Körfuboiti I kvöld eru þrír leikir í úrvalsdeild-
inni. í Keflavík leika heimamenn og KR-ingar.
Keflvíkingar eru efstir í A-riðli og öruggir i úr-
slit, KR-ingar hafa hins vegar misst af úrslita-
sæti í ár. Skallagrímur leikur við Tindastól í
Borgarnesi. Sauðkræklingum hefur gengið af-
leitlega í vetur og mega hafa sig alla við ef þeir
ætla ekki aö falla. Það gekk allt á afturfótunum
hjá Skagamönnum um tíma í vetur. Þeir hafa
heldur betur tekið sig á og unnu í síðustu viku
hið sterka lið Njarövíkur. Þeir taka á móti Hauk-
um f kvöld og nú er að sjá hvort Skaginn nær að
halda dampi. Tveir fyrrnefndu leikirnir hefjast
klukkan 20.00 og leikurinn á Akranesi hálftíma
síðar.
ÓS\
i. Campari
2. Grand Marnier
3. Vodka
4• Gin
5. Romm
m n
GERAST?
SJÓNVARP
RIKISSJONVARP 08.25 Olympíuleikarnir í
Lillehammer Bein útsending frá fyrri umferð í
stórsvigi kvenna. Meðal keppenda erÁsta S.
Halldórsdóttir. Útsending stendur til klukkan
10.00.11.55 Ólympíuleikarnir í Lillehammer
Bein útsending frá seinni umferð í stórsvigi
kvenna. Einnig verður sýnt frá 30 km skiða-
göngu kvenna. Útsending stendur til klukkan
14.00.17.50 Táknmálsfréttir 18.00 SPK
18.25 Ólympíuleikarnir í Lillehammer Saman-
tekt frá keppni fyrri hluta dags. 18.55 Frétta-
skeyti 19.00 Viðburðarríkið 19.15 Dagsljós
20.00 Frétfir 20.30 Veður.20.35 Syrpan
21.10 Stelpur í stórræðum Cattle Ánnie &
Little Britches Bandarískur vestri sem segir frá
tveimur unglingsstelpum sem slógust f för með
útlögunum Doolin og Dalton. 23.00 Ellefufréttir
23.15 Þingsjá. Helgi Már segir tíðindi af Al-
þingi. 23.30 Ólympíuleikarnir í Lillehammer
Samantekt frá keppni seinni hluta dags.
STÖÐ TVÖ 16.45 Nágrannar 17.30 Með afa
19.1919.19 20.15 Eiríkur 20.35 Systurnar
Þáttur um Reed-systurnar og fjölskyldur þeirra.
21.25 Sekt eða sakleysi. 22.20 Krómdátar
Crome Soldiers Fyrrverandi Víetnamhermaður
er myrtur í heimabæ sínum. Gamlir félagar hans
úr stríðinu mæta á svæðið staðráðnir í því að
koma fram hefndum. Hasarmynd þar sem allt er
vaðandi, (svörtu leðri, mótorhjólum og krómi.
23.50 í furðulegum félagsskap Slaves of
New York Mynd um bóhem liðið í N.Y. 01.30
Richard Prior hér og nú Richard Prior Here
and Now Gamanleikarinn á sviði meðan hann
var ennþá fyndinn.
Föstudagur
P O P P
Bubbleflies eru ásamt gestahljómsveit f Ró-
senbergkjallaranum. Aldrei þessu vant er
hljómsveitakvöld í Rósenberg, tilelnið er líka
ærið því félagarnir í Bubbleflies hafa setf saman
þétt fönk og acid-jazz prógramm sem þeir ætla
að renna sér í gegnum í kvöld. Síðast þegar
Bubbleflies spiluðu í Rósenberg varð hitinn svo
mikill að veggirnir grétu.
Rask er rokk- og ballöðuhljómsveit og er á
Tveimurvinum.
Fánar gleði- og skemmtisveitin er á úthverfi-
skránni með flotta nafninu, það er Feita dvergn-
um. Þeir spila gamalt og gott rokk úr smiðju
Bítlanna og Van Morrison meðal annars.
Hress er hljómsveit sem í eru 4/5 at Snigla-
bandinu. Hún er á Bóhem en þar stendur mikið
til í kvöld því opnað verður með pompi og pragt
upp á efri hæð staðarins. Þar er búið að innrétta
diskótek og er stetnan að hafa þar gjörólíka
stemmningu en á neðri hæðinni.
Papar sem einu sinni áttu allir ættir sínar að
rekja til Eyja, það var áður en f hópinn bættust
meðlimir af meginlandinu og frá Færeyjum. Þeir
eru á Café Amsterdam með sitt stuð rokk og
ætla að leika undir grímudansleik sem haldið
verður á staðnum.
BAKGRUNNSTÓNUST
Jazz fríó Reykjavíkur eru á Sólon. Félagarnir
I tríóinu eru orðnir fastagestum Sólon að góöu
kunnir enda hafa þeir spilað þar svo til á hverju
föstudagskvöldi síðustu vikur. Trfóið leikur
ýmsa vel þekkta standarda úr djasssögunni.
Ein stærsta krá landsins opnuð snemma í mars
„Við stefnum að því að opna 11.
mars,“ segir Guðmundur Þórs-
son, einn þriggja eigenda að nýrri
krá og koníaksbar á horni Tryggva-
götu og Norðurstígs sem kemur til
með að taka 225 gesti. Svo virðist
sem þungamiðja skemmtanalífsins
sé sífellt að færast vestar í bæinn og
nær höfninni, eins og var í Reykja-
vík upp úr aldamótum og sollurinn
í Hafnarstræti átti sitt blómaskeið.
Guðmundur, sem þekktastur er
fyrir Grillhúsið sem kennt er við
hann, stendur í þessum fram-
kvæmdum í samstarfi við smiðina
Jón Arnar Einarsson og Magnús
Kjærnested.
Hvernig staður verður þetta?
„Húsnæðið er tvískipt. Fremri
salurinn sem snýr að Tryggvagötu
verður með pöbbafílingu. Barinn
verður stór og svið fyrir lifandi tón-
list. Þegar er frágengið að Ellen
Kristjánsdóttir verði með hljóm-
sveit sína frá sunnudegi til mið-
vikudags. Á fimmtudögum verðum
við með uppákomur og þá fáum til
okkar trúbadora og listamenn til að
spila djass, blús og jafnvel eitthvað í
áttina að klassík. Um helgar er svo
ætlunin að fá hljómsveitir til að
troða upp en þó ekkert „heavy met-
al“. Öll tónlist verður sem sagt á ró-
legu nótunum, gestirnir eiga að
geta notið hennar en jafnframt tal-
að saman.
1 efri salnum verður svo koníaks-
stofa innréttuð í funkisstílnum frá
því fýrir stríð. Ætlunin er meðal
annars að höfða til sælkera og
áhugamanna um vínsmökkun og
vindlareykingar. “
Til hvaða aldurshóps œtlið þið að
reyna að höföa?
„Miðað við tónlistina og and-
rúmsloftið sem við ætlum að skapa
stefnum við á aldurshópinn 28-45
ára enda á þessi aldurshópur sér
varla samastað í skemmtanalífinu í
dag.“
Guðmundur segir að mótmæli
nágranna eigi ekki eftir að hafa
áhrif á áform þeirra þremenning-
anna. Þannig háttar tiJ að bakhluti
hússins snýr inn í garð næsta íbúð-
arhúss sem er staðsett í friðsælu
porti við Norðurstíginn. Ibúarnir
tóku sig saman og reyndu að koma
í veg fyrir að leyfi fengist fyrir
kránni á þeim forsendum að há-
vaðinn og ónæðið af kráargestun-
um yrði óþolandi. Guðmundur
segir að þeir þurfi ekki að hafa
áhyggjur af hávaða. „Ekkert hús-
næði í Reykjavík hefur verið ein-
angrað eins og við höfum gert. Það
er einangrað eins og stúdíó og á
þeim forsendum er ekki hægt að
neita okkur um leyfi.“
Hvað á staðurinn svo að heita?
„í gamla daga gekk húsið undir
nafninu Turnhúsið vegna turnspír-
unnar á horninu og við erum að
gæla við það nafn.“ ©
TRYGGVAGATA 8
í þessu gamla og fallega húsi á horni Tryggvagötu og Norður-
stígs verður ný krá og koníaksstofa opnuð innan skamms. Ætlun
eigendanna er að höfða til fólks á aldrinum 28-45 ára.
Hressó í sókn í menningarlífinu
Hressingarskálinn gefur út veg-
lega afmælisbók í tilefni af sextíu
ára afmæli staðarins. Fyrirhugaður
útgáfudagur er sumardagurinn
íyrsti, en í tengslum við útgáfuna
verður einnig haldin bókmennta-
hátíð á Hressó dagana 27.-29. apríl
næstkomandi.
Sigurjón Skæríngsson nýbak-
aður framkvæmdastjóri, segir að
sér hafi þótt við hæfi að halda upp á
þessi tímamót, þótt seint sé, en
þetta elsta samfellt starfandi kaffi-
hús bæjarins var stofnsett árið 1932.
„Hressó hefur verið eitt af menn-
ingarsetrum Reykjavíkur um árabil
og gestir okkar hafa sett svip sinn á
þjóðlífið og því við hæfi að setja
Hressó á þann stall sem veitinga-
staðnum ber,“ segir Sigurjón.
„Kjarval var einn af þeim fjölda
listamanna sem sótt hafa staðinn í
gegnum tíðina en af fastagestunum
í dag má nefna þá Fiosa Ólafsson
leikara, Gunnar Dal rithöfund og
Jörmund Inga allsherjargoða,"
bætir hann við.
Útgáfa bókinnar er hugmynd
Sigurjóns og Ara Gísla Bragasonar
skálds, en sá síðarnefndi ritstýrir
verkinu í félagi við Benedikt
Sveinsson rithöfund. Undanfarin
fimm ár hefur Ari af og til staðið
fyrir ljóðakvöldum á Hressó en
hann segir að sér finnist þetta um-
hverfi í hjarta borgarinnar afar
heillandi. Áð sögn Sigurjóns vilja
þeir félagar gefa ungum uppreisn-
arskáldum, sem ekki hafa bolmagn
sjálf til að standa undir eigin út-
gáfu, tækifæri til að koma verkum
sínum á bók. „Við eigum von á að
tvö til þrjú hundruð höfundar taki
þátt í framtakinu en við ætlum ekki
að setja okkur í dómarasætið og
hafa þetta eins opið og er mögu-
legt,“ segir Ari.
Á bókmenntahátíðinni verður
síðan ungum sem öldnum gefinn
kostur á að lesa úr verkum sínum
en það er gert í krafti þeirrar bók-
menntauppsprettu sem Hressing-
arskálinn hefur verið skáldum og
rithöfundum allt frá stofnun, að
sögn aðstandendanna.
Gunnar Dal segist hafa sótt
Hressó reglulega í gegnum árin
enda hafi hann verið „miðbæjar-
maður“ undanfarna sex til sjö ára-
tugi. „Ég hef sennilega byrjað að
líta við á Skálanum eins og staður-
inn var kallaður, þegar ég var sjö
ára. Ég kom meðal annars við þar
og á Hótel íslandi og Skjaldbreiði
til að selja blöð,“ segir Gunnar.
„Ég er hluti af um það bil 70
manna sundurleitum hópi sem
hittist á Hressó í morgunkaffinu en
það er ákveðin samheldni okkar á
milli þótt sumir láti kannski ekki
sjá sig árum saman. Þetta eru alls
konar menn; allt frá togarasjó-
mönnum og niður úr. Þarna getur
verið gott að ræða hugmyndir sínar
ef maður er að skrifa bók og félög-
um í hópnum er liðið að „dósera"
(kenna) eins og kallað er, þótt slíkt
þyki yfirleitt ókurteisi á öðrum
samkomum.
Maður fær stundum fréttir með
morgunkaffinu á Hressó áður en
verði settur á þann stall sem
staðnum ber í menningarsögu
borgarinnar.
Lifun og Vinir vors og blúma eru á Pizza
67. Hljómsveitirnar skiptast á aö halda uppi
stuðinu.
Pálmi Gunnarsson og Magnús Eiríksson
eru á Café Royale í Hafnarfirði, stemmningin
verður valalaust á bláu tregafullu nótunum.
L E I K H Ú S
Blóðbrullaup eftlr Lorca á Litla sviði Þjóðleik-
hússins kl. 20:00. Bríet Héðinsdóttir leikur
mömmuna mjög vel. Þær Ragnheiður Stein-
dórsdóttir og Vigdís Gunnarsdóttir eru jafntramt
mjög góðar í hlutverkum þjónustustúlkna.
Aliir synir mínir eftir Miller á Stóra sviði
Þjóðleikhússins kl. 20:00. Gaman að sjá Hjálm-
ar Hjálmarsson takast á við alvarlegt hlutverk.
Elín Helena eftir Árna Ibsen á Litla sviði Borg-
arleikhússins. kl. 20:00. Þetta er síðasta sýning-
arhelgi.
Eva Luna ettir sögu Isabel Allende á stóra sviöi
Borgarleikhússins kl. 20:00.
UPPÁKOMUR
Jéna de Groot söngkonan efnilega úr Black
Out heldur upp á afmæli sitt á Hressó í kvöld. í
veisluna mæta að öllum líkindum allir þeir rokk-
arar af ungu kynslóðinni sem ekki eru bókaöir í
spilamennsku um kvöldið. Húsið opnar fyrir al-
menna gesti upp úr ellefu og verður væntanlega
. glatt á hjalla langt fram eftir nóttu.
í Þ R Ó T T I R
Handbolti Klukkan 20.30 hefst leikur Þórs og
FH á Akureyri. Þórsarar hafa veriö mjög slakir i
vetur og það ætti því að vera auðvelt fyrir Hafn-
firðinga að innbyrða bæði stigin.
SJÓNVARP
RIKISSJONVARPIÐ 11.25 Olympíuleikarnir i
Lillehammer Bein útsending Irá skíóastökki al
90 metra palli. Einnig verður sýnt írá svigi karla
I alpatvíkeppni. Útsending stendur til klukkan
14.45.17.30 Þingsjá. Endurtekin Iráþvíkvöld-
iðáður. 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 Gulleyjan
18.25 Ólympíuleikarnir í Lillehammer Saman-
tekl trá keppni fyrrihluta dags. 18.55 Frétta-
skeyti. 19.00 Poppheimurinn Syiðsmyndin I
þessum þætti er ólrúlega hatlærisleg. Leik-
myndateiknarinn ætti að linna sér annað starf.
19.30 Vistaskipti 20.00 Fréttir 20.35 Veður
20.40 Gettu betur Spurningakeppni tramhalds-
skólanna. Spyrjandi Stetán Jón Hatstein. 21.30
Nýir landnámsmenn Þriðji og stðastiþáttur.
22.00 Samherjar 22.55 Ólympíuleikarnir í
Lillehammer Sýnd verður upptaka trá keppni
kvenna i listdansi. 23.30 Allt fyrir ástina I
Don’t Buy Kisses Anymore Fitubolla verðurhrif-
in af stúlku sem er í sállræðinámi. Hún er hins
vegar i heimildasölnun lyrir rilgerð um oltitu-
sjúklinga og hann misskiluráhuga hennar.
01.05 Ólympíuleikarnir í Lillehammer Saman-
tekt trá keppni seinni hluta dags.
STÖÐ TVÖ 16.45 Nágrannar 17.30 Sesam
opnast þú 18.00 Úryalsdeildin 18.30 NBATil-
þril 19.1919.19 20.15 Eiríkur 20.35 Ferðast
um timann 21.25 Coltrane og kádiljákurinn
21.55 Á rúi og stúi Disorganized Crime Þaut-
skipulagt bankarán fer allt I vitleysu þegar hugs-
uðurinn á bak við það er handtekinn. Corben
Bernsen úrL.A. Law er þekktasti leikarinn t
þessari bóíamynd. 23.35 Hart mætir hörðu
Brothers in Arms Spennumynd um arabískan
iiðsmann trönsku leyniþjónuslunnar og löggu at
gyðingaættum. Þeir eru báðir að reyna aðktó-
festa hættulegan glæpamann en samstartið
gengur upp og ofan. Ein skærasta kvikmynda-
stjarna Frakka Palric Bruel leikur aðalhlutverk
myndarinnar. 01.15 Á faraldsfæti Longshot
Tveir ungir piltar ætta að verða rlkir af fótbotta-
spiti, og auðvitað tekst þeim það eltir nokkrar
hremmingar I anda fíocky myndanna. Það hetur
ettausl verið ætlun tramleiðanda myndarinnar
að nýta sérþáverandi vinsældir unglingastjörn-
unnar Leit Garetts sem leikur annan piltanna.
02.50 Nátthrafnar Nightbreed Hryllingsmynd
úr smiðju Clive Barkers. Þeir einu sem eiga
góðan dag eru törðunarmeistarar myndarinnar.
Fyrir blanka
Þeir sem hafa sleppt afnota-
gjöldunum og komast ekki á
völlinn sakir blankheita, þá
vantar gjarnan þá lífsfyll-
ingu sem felst í aö fylgj-
ast með keppnisfþrótt-
um, en það er ekki öll
von úti, eins og sjá má
á eftirfarandi fþrótt,
sem krefst nokkurra al-
gengra hluta á flestum
heimilum. Hóaðu fjöl-
skyldunni saman inn í
eldhús og berðu sólblóma- O
olíu á botninn á örbylgju- {
ofninum. Taktu siðan eitt
greipaldin fyrir hvern fjölskyldu-
meðlim og merktu hvert þeirra með
upphafsstöfum ykkar. Leggöu greipaldinin
síðan hlið við hlið inn í örbylgjuofninn, þétt upp að vinstri hlið
hans, þannig að stilkurinn snúi beint að veggnum. Lokaðu svo
ofninum og settu f gang. Greipaldinin munu taka á rás þvert yfir
ofninn og sá vinnur, sem á það þeirra sem fyrst kemst alla leið
yfir. Hægt er að veðja eldspýtum á útkomuna, en það eykur
spennuna að ekki Ijúka öll greipaldinin keppni, því þau geta líka
sprungið á leiðinni og það er vitaskuld mesta stuðið. Sá sem
tapar keppninni með þeim hætti þrffur ofninn.
FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1994
34