Eintak - 24.02.1994, Síða 40
Agalegt að
Herluf sé að
fara hausinn
út af elnskis
nýtum
kröf-
um.
Blessaður
vertu, hann
fer ekki á
hausinn af
því. Verka-
lýðshreyfingin
hefur lifað með
innihaldslausum
kröfum í áratugi og
hefur aldrei staðið
betur.
O Súkkat til Stuttgart © Hver með átta til tíu myndir
Hróöur félaganna Hafþórs Ólafs-
sonar og Gunnars Arnar Gunn-
arssonar, sem mynda dúettinn
Súkkat, hefur nú borist út fyrir landsteinana.
Tónlistarflutningur þeirra, sem upphaflega
var hugsaður sem skemmtun fyrir vini og
kunningja, hefur fallið vel í kramið hjá ólík-
legasta fólki. í dag, fimmtudag, héldu þeir
áleiðis til Stuttgart í Þýskalandi þar sem þeir
munu troða upp á þorrablóti íslendingafé-
lagsins þar um slóðir. Fer vel á því þar sem
textar Hafþórs eru á köflum einkar þjóðleg-
ir...
Geysilegur áhugi er fyrir stuttmynda-
dögum sem Kvikmyndafélag Islands
ætlar að standa fyrir í mars. Þetta
verður í þriðja skiptið á jafn mörgum árum
sem þeir félagar JÓHANN Sigmarsson og
JÚLÍUS KEMP halda stuttmyndahátíð og
hefur áhuginn aldrei verið jafn mikill og nú.
Þótt enn sé ekki farið að óska eftir myndum
er þegar farið að hringja inn og spyrjast fyrir
um hvert megi senda myndir. Margir af þeim
sem hringja hafa áður tekið þátt í hátíðinni
og þá sent inn eina eða tvær myndir. Núna
eru þessir ungu og áköfu kvikmyndagerðar-
menn, sumir hverjir, með átta eða níu mynd-
irtilbúnar á hátíðina...
Ríkisstjórnarsamstarfið stendur tæpt eftir atburði gærdagsins að mati áhrifamanna í báðum flokkum
Hofsvallagata 1
Einbýlishús Herluifs var slegið
á uppboði í síðustu viku.
Bvvvssarvv
Tilfinningahíti og tauga-
veiklun í rfldsstjóminni
í gærkvöldi var staðan í ríkis
stjórnarsamstarfinu með þeim
hætti að þingmenn beggja flokka
gátu allt eins átt von á því að hringt
yrði í þá til að tilkynna um fyrir-
huguð stjórnarslit. Eftir að Egill
Jónsson, þingmaður Sjáifstæðis-
flokksins og formaður landbúnað-
arnefndar Alþingis, lagði fram drög
að frumvarpi til breytinga á bú-
vörulögunum tók landbúnaðar-
deila stjórnarflokkanna enn nýja
stefnu. Margir alþýðuflokksmenn
iitu svo á að Egill og stuðnings-
menn hans í þessu máli innan Sjálf-
stæðisflokksins hefðu kastað stríðs-
hanskanum.
Öruggar heimildir EINTAKS úr
Astandið í stjórnarráðinu er farið
að minna æ meira á siðustu daga
rikisstjórnar Þorsteins Pálssonar.
Þá sat Þorsteinn einangraður í
stjórnarráðinu og reyndi að gera
sér i hugarlund hvaða launráð
þeir Jón og Steingrímur væru að
brugga gegn sér. Hann var
hræddur, en svo bráði af honum
á milli. Þannig var með Davið fyr-
ir helgi. Hann varfarinn að sjá
útspekúlerað plott Jóns Baldvins
gegn sér og ríkisstjórninni og
þurfti að fá Jón niður i stjórnar-
ráð til að fullvissa sig um að
hann væri ekki að sprengja ríkis-
stjórnina. Á eftir slappaði hann
af, fór á Þingvöll og grillaði í góða
veðrinu. En hann var varla búinn
að koma sér fyrír en allt fór af
stað aftur og hann vissi ekki
lengur á hverju hann átti að eiga
von. Eini munurinn á ástandinu í
dag og á síðustu dögum Þor-
steins er sá að núna er Jón alveg
jafnt úr takt og Davið. Hann sér
líka fyrir sér djúpstæð plott sjálf-
stæðismanna til að sprengja
stjórnina. En ístað þess að tala
við Davið og fá fullvissu fyrir um
að þetta sé ímyndun fer hann i
rússneska sendiráðið og fær sér
vodka. Á meðan Davíð grillar enn
á Þingvöllum. Og Egill Jónsson
stjórnar.
Lalli Jones
innsta hring Sjáifstæðisflokksins
herma að Davíð Oddsson, forsæt-
isráðherra, hafi verið kominn á þá
skoðun fyrir síðustu helgi að Al-
þýðuflokkurinn væri að spila sig út
úr stjórninni með úthugsaðri leik-
fléttu. Jón Baldvin hafi hins vegar
sannfært hann um að svo væri ekki
á sunnudaginn. Effir atburði gær-
dagsins komst þessi samsæriskenn-
ing aftur á kreik í herbúðum sjálf-
stæðismanna.
Atburðarásin er orðin svo hröð
að sumir stjórnarliða í báðum
flokkum óttast að forystumennirn-
ir missi tökin á þessu máli þannig
að'ekki verði við neitt ráðið.
Búist var við að reynt yrði að ná
sáttum án frekari upphlaupa eftir
að Davíð Oddsson, forsætisráð-
herra, og Jón Baldvin Hannibals-
son, utanríksráðherra, náðu sam-
komulagi sín á milli um síðustu
helgi.
Þingflokkur Alþýðuflokksins
brást því ókvæða við útspili Egils og
samþykkti síðdegis í gær einróma
að hafna drögum hans og flutti Jón
Baldvin þingflokk sjálfstæðis-
manna þau skilaboð. Davíð var
hins vegar í sumarbústað á Þing-
völlum og hafði því ekki séð drög-
in. Kratar líta á drögin sem tví-
mælalaust brot á samkomulagi
oddvita stjórnarflokkanna, sérstak-
lega það sem snýr að meðferð inn-
flutnings á iandbúnaðarvörum eftir
gildistöku GATT-samningsins, og
benda á að Friðrik Sophusson,
fjármálaráðherra sé sama sinnis.
EINTAK náði tali af nokkrum í
innsta kjarna beggja flokka í gær-
kvöldi. Greinilegt var á þeim sam-
tölum að menn vissu varla hvað var
að gerast. „Stjórnarsamstarfið
stendur tæpt og það ríkir mikil
spenna á þessu augnabliki," sagði
einn úr innsta kjarna Alþýðu-
flokksins. Hann bætti við að al-
þýðuflokksmenn margir væru
„hissa á því hvað Egill virðist fá að
valsa án leiðsagnar forystumanna
flokksins“. Sumir kratar túlka það
þannig að Sjálfstæðisflokkurinn sé
tilbúinn til að láta steyta á þessu
máli í ríkisstjórnarsamstarfinu.
Sjálfstæðismaður, nákominn
Davíð, sagði hins vegar að tilfinn-
ingahiti alþýðuflokksmanna í gær
kæmi sjálfstæðismönnum í opna
skjöldu. Egill hefði lýst því yfir í síð-
ustu viku að hann ætlaði að leggja
fram þessi drög og það hefði ekki
átt að koma nokkrum manni á
óvart. Frumvarpið verði ekki lagt
fram fullbúið fyrr en í fyrsta lagi á
mánudag og því gæfist nægur tími
til að ná samkomulagi. Egill væri
hins vegar erfiður viðureignar þar
sem hann hafi keypt sér svigrúm
gagnvart forystumönnum flokksins
með því að halda því fram að hann
hefði öruggan þingmeirihluta fyrir
frumvarpsdrögunum.
Skotgrafahernaður stjórnarliða í
þessu máli hefur valdið því að þing-
menn vita vart í hvorn fótinn þeir
eiga að stíga. Margir eru orðnir
þreyttir á þessu máli og vilja fá nið-
urstöðu strax. Þannig sagði Eggert
Haukdal, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, í samtali við eintak í
gærkvöldi að Alþýðuflokkurinn
væri ósamstarfshæfur í þessari rík-
isstjórn og margir landsbyggðar-
þingmenn Sjálfstæðisflokksins
væru orðnir þreyttir á samstarfinu.
„Fyrir löngu hefði átt að vera búið
skilja kratana eftir í þessu máli. Ég
hefði viljað að stefna flokksins hefði
verið knúin fram og hann verður
að manna sig upp. Alþýðuflokkur-
inn verður að gera sér grein fyrir að
hann hefur enga stöðu í þessu máli
gagnvart þjóðinni.“
Einn möguleiki sem menn hafa
verið að velta fyrir sér í stöðunni er
að Egill leggi frumvarp sitt fram
sem þingmannafrumvarp. Ef það
fengi góðan meirihluta á Alþingi,
sem alls ekki er ósennilegt, væri AJ-
þýðuflokknum varla stætt á því að
slíta stjórnarsamstarfinu því þá
væri hann að lýsa því yfir að hann
vildi ekki beygja sig undir þing-
meirihlutann. Raunar sagði einn
krati sem rætt var við í gær að það
væri ekki versti kosturinn í stöð-
unni. „Þá neyðast menn tii að taka
afstöðu til þessa neytendaníðs, eins
og við köllum þessi frumvarps-
drög.“0
liiVVlifl
Herluf Clausen rýfur þagnarmúrinn og tjáir sig í fjölmiðlum í fyrsta sinn í yfir tuttugu ár.
Hef þurfl að afskrifa stórar Qárhæðir
AUSTURSTRÆTI ÞÓRPARHÖFÐA1
SÍM117371 SÍMI 676177
í EINTAKI í dag er íjallað ítarlega
um erfiða fjárhagsstöðu fjármála-
veldis Herlufs Clausens og getum
að því leitt að það geti hrunið til
grunna. Haft var samband við
Herluf á meðan á vinnslu greinar-
innar stóð og hann spurður út í
ýmsa þætti málsins. Hann svaraði
þeim spurningum ekki en sendi
blaðinu eftirfafandi skrif, skömmu
áður en blaðið fór í prentun, sem
hann ritaði undir eigin hendi:
„Á síðustu árum hefur verið al-
varleg niðursveifla í íslensku efna-
hagslífi og hefur enginn sem stund-
ar viðskipti farið varhluta af því.
Sérstaklega hefur verslun orðið illa
úti og þar sem ég stundaði um-
fangsmikinn innflutning, þá hef ég
fengið minn skerf af þessum erfið-
leikum. Margir af mínum við-
skiptavinum hafa farið illa út úr
sínum rekstri og lent í umtalsverð-
um vanskilum við mig, sem leitt
hefur til þess að ég hef þurft að af-
skrifa stórar fjárhæðir. Slíkt er eðli
viðskipta og ber ég engan kala til
þessara manna, heldur reyni ég að
horfa fram á veginn og leyfi mér að
trúá því að einhvern tíma aftur
verði eðlilegar aðstæður til við-
skipta á íslandi.
I dag er staða mín þannig að mér
er nauðsynlegt að losa þá fjármuni
sem eru bundnir í fasteignum og'
öðrum slíkum eignum til að bæta
lausafjárstöðu fyrirtækja minna.
Þegar markaðsaðstæður eru með
því móti sem þær eru í dag, þá get-
ur verið erfitt að mæta þeim tíma-
mörkum sem lánastofnanir setja til
að koma með viðunandi lausn og
varð það til m.a. til að ekki tókst að
forða Hofsvallagötu í frá sölu á
uppboði þ. 16. feb. sl. Þess ber þó að
geta að ég hafði þegar fyrir all löngu
síðan ákveðið að selja jiessa eign og
ráðstafa andvirði hennar til
greiðslu á skuldum. Með hagsmuni
lánadrottna minna í huga þá taldi
ég rétt að stuðla að því að verðmæti
þessarar eignar færi ekki forgörð-
um, þar sem eignin hafði áður ver-
ið metin töluvert hærra verði.
Ég tel mig ekki hafa neinar skyld-
ur við lesendur EINTAKS um að
upplýsa þá um viðskipti mín við
lánastofnanir landsins, en vil þó
segja þetta:
í 29 ár hef ég átt viðskipti við
ýmsar lánastofnanir á Islandi og
leyfi mér að fullyrða að þessi við-
skipti hafa verið þeim hagstæð allt
fram á síðustu misseri. Málefni mín
hafa ávallt fengið sambærilega af-
greiðslu og málefni annarra við-
skiptavina þessara lánastofnana.
I dag er unnið að fjárhagslegri
endurskipulagningu sem hefur
þann tilgang að fullnusta lána-
drottna og styrkja áframhaldandi
rekstur fýrirtækja minna. Engin
fordæmi eru fyrir því að hægt sé að
vinna slíka vinnu í fjölmiðlum, og
verð ég því að skorast undan því að
ræða einstök efnisatriði þessara að-
gerða.“ O
Sjá ítarlega umfjöllun
ábls 14-15.
Vandað vikublað á aðeíns 195 kr.
Fréttir
ð Skandia segir ekki
skrifar undir skjöli
sölunum
14 Bankarnir þjarrn
Clausen
'Æh,
Skoðanakannanir
Cl Sjálfstæðismenn
í vondum málum í
Reykjavík
9 Þriðjungur telur
Markús ekki besta
borgarstjóraefni
sjálfstæðismanna
Greinar
Tð X-kynslóðin: Sú sem hefur
það verr en foreldrarnir
22 Ólafur Gunnarsson: Ævisaga
mín á tólfta glasi
24 Hverjir eru í landsliðinu í
karlrembu?
26 Minningarbrot um Dag Sig-
urðarson
32 Bubbi og allir umboðsmenn-
irnir
Viðtöl
12 Er álíka vont
fyrir útlendinga að
forræðismál á
íslandi og fyrir ís-
lendinga í Tyrk-
landi?
16-20 Ungt fólk
misbjarta
framtíðarsýn
Fólk
RLR-bílarisparinn gerir usla í
borginni
. Hver er þessi Lovejoy?
34 Ný krá á Tryggvagötu
34 Hressó er sextíu ára
35 Ballerínan Þóra
36 Jazztríó Reykjavíkur
37 Barstúlkan á svakakránni
Keisaranum
Krjtík
Flóttamaðurinn
★
Saktmóðigur
★ ★
Ingó og Vala
★ ★
„Aflireyi ng fyrir þá sem
vilja komast í vanda-
málastuð og skílsœtni-
leg setn slík“