Morgunblaðið - 11.01.2006, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 2006 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
0 # 4
-56 "#$"%
&#"'%
(%&
%%
3
3
78-'
9%:
)#*+'
)#,')
-%+
-%+
3
3
;%; <.:
,#+*"
'.)
-%$
-%.
3
3
<.: $!
0++
$**
&*#&",
-%*
-&'
3
3
=;': 91> ?1
)#',&
&&#%&%
-%,
%%
3
3
● LOKAGILDI Dow Jones vísitöl-
unnar í kauphöllinni í New York síð-
astliðinn mánudag var 11.012 stig
og hækkaði hún um 0,5%. Þetta væri
ekki í frásögur færandi nema fyrir
það að vísitalan hefur ekki náð slík-
um hæðum síðan í júní árið 2001,
fyrir hryðjuverkaárásirnar á World
Trade Center þann 11. september
sama ár. Þykir þetta til marks um já-
kvæða hagsveiflu í Bandaríkjunum.
Dow Jones yfir
11 þúsund stig
● YFIRTÖKUNEFND mun skoða þær
miklu breytingar sem urðu á eignarað-
ild í Íslandsbanka um liðna helgi, í
samræmi við hlutverk nefndarinnar,
segir Viðar Már Matthíasson, formað-
ur yfirtökunefndar. Hann segir að
málið hafi verið rætt á fundi nefnd-
arinnar síðastliðinn mánudag en eng-
in ákvörðun hafi verið tekin um hvort
farið verði fram á sjálfstæða rann-
sókn eða ekki. Nefndin muni hittast
aftur í næstu viku þar sem þetta mál
verði líklega rætt aftur.
Yfirtökunefnd skoðar
kaupin í Íslandsbanka
● Hlutabréf lækkuðu í verði í Kaup-
höll Íslands í gær eftir mikla hækkun
að undanförnu. Úrvalsvísitalan lækk-
aði um 0,42% og er 5941 stig. Bréf
SÍF hækkuðu um 4,3%, bréf FL Gro-
up um 2,9% og bréf Bakkavarar
hækkuðu um 1,3%. Bréf Flögu lækk-
uðu um 4,99% og bréf Atorku um
2,19%. Viðskipti með hlutabréf
námu 14 milljörðum, þar af 8,8 millj-
arðar með bréf Íslandsbanka.
Lækkun í Kauphöllinni
● INTRUM á Íslandi efnir í fyrramálið
til morgunverðarfundar á Grandhót-
eli um greiðsluhegðun Íslendinga og
hvort hún stenst alþjóðlegan sam-
anburð. M.a. verða kynntar nið-
urstöður evrópskrar könnunar. Fund-
urinn hefst kl. 8.
Fundað um greiðslu-
hegðun Íslendinga
!"#
$
#$% $&' $'
$
%@ A1 !B
%1+ A1 !B
, ++ A1 !B
9 C !B
7
A1 !B
7D A1 !B
E
# + !B
$ , + !B
$ !B
D # + E
# !B
.
!B
.1 @ 7 !1 !B
-E7 !B
- /, " 7)"B + !B
F !B
!"#$% 7+ + E
# !B
A # !B
) !B
=@
#@ A1 !B
? 1 !B !
0G! ) !B
6&7 %
@ 6 1
8( !B
2
!B
& !'%()%*+
7+
# '() ) !B
-
"H
-
# B
*,-.% =;'I
-*
+B
/
/
/
/
/
/
/
, ( "
( +B
/
/ / /
/
/
/ / /
/
/
/
/
/ /
/
/
/
/
/
J 3K
/
J 3K
J /3K
J /3K
J
3K
/
J /3K
J /3K
J /3K
J /3K
/
J 3K
J /3K
/
/
J 3K
/
J /3K
J 3K
/
J 3K
/
/
/
/
/
# +
#
8
1 *
1+ # L
$ -
B B
B
B
B B
B BB
B B
B B B B
B B
B /
B
/
B
B /
/
/
/
/
2+ * CB +B
%8B M %!
7)
#
+
/
/
/
/
/
/
/
STELIOS Haji-Ioannou, stofnandi
og aðaleigandi lággjaldaflugfélagsins
easyJet, hefur ekki viljað útiloka að
hann og fjölskylda hans selji 40,5%
hlut sinn í easyJet að því er kemur
fram í frétt The Independent í gær. Í
yfirlýsingu sagði Stelios að hann væri
enn jafnlangt frá því að selja hlut fjöl-
skyldunnar og áður. „Ég tel að bréfin
geti hækkað enn frekar. Sem eigandi
vörumerkisins easyJet skiptir það
mig máli hver leigir það en ég hef enn
ekki skoðað hlutina nógu vel til að
ákveða hvort í lagi sé að FL Group fái
merkið eða ekki.“
Stelios vildi ekki tjá sig nánar um
málið en The Independent hefur eftir
heimildarmönnum að Stelios muni,
þegar til lengri tíma er litið, selja hlut
sinn í félaginu.
Farþegum fjölgaði
Hlutabréf í easyJet fóru yfir 400
pens á hlut á mánudag en lækkuðu í
398,75 pens í gær. Í tilkynningu fé-
lagsins í upphafi vikunnar kom fram
að farþegum hefði fjölgað um 18% á
síðasta ári og að tekjur félagsins
hefðu aukist um 20,5% milli ára. Fé-
lagið flaug með 30,3 milljónir farþega
í fyrra á móti 25,7 milljónir farþega
árið áður. Tekjur easyJet námu 1,38
milljörðum punda samanborið við
1,15 milljónir punda árið áður.
Stelios útilokar
ekki sölu
STJÓRN Kers hf. hefur tekið ákvörð-
un um að selja allt hlutafé félagsins í
Olíufélaginu ehf., stærsta söluaðila
eldsneytis á Íslandi. Í tilkynningu um
söluna segir að ákvörðunin tengist
breyttum áherslum á fjárfestinga-
stefnu Kers sem miða að því að auka
vægi fjárfestinga erlendis.
Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður
Kers, vildi í samtali við Morgunblaðið
ekki segja hvaða væntingar um sölu-
verðmæti stjórnin gerði til félagsins,
en á síðasta ári var velta þess um 24
milljarðar króna. Þess má geta að í
mars á síðasta ári gerði fjárfesting-
arfélagið Grettir tilboð í Olíufélagið
sem hljóðaði upp á 8,5 milljarða, en
því var hafnað. Þá var markaðsvirði
Olíufélagsins þegar það var afskráð í
Kauphöll Íslands vorið 2003 um 11
milljarðar króna.
Ólafur segir að ekki hafi borist til-
boð í félagið og engar viðræður hafi
átt sér stað að svo stöddu, en hann viti
um nokkra sem hafi áhuga á félaginu.
„Salan fer í gegnum ákveðið ferli
sem Íslandsbanki annast og þangað
geta áhugasamir fjárfestar leitað og
fengið upplýsingar um rekstur og
stöðu félagsins. Á grundvelli þeirra
upplýsinga munu menn svo senda
okkur tilboð og í framhaldinu munum
við hefja viðræður við einn eða tvo að-
ila,“ segir Ólafur og bætir við að
stefnt sé að því að ljúka sölunni innan
fjögurra mánaða.
Umbreytingarstarfi lokið
Ólafur segir að eftir að Ker tók yfir
starfsemi Olíufélagsins árið 2001 hafi
verið ráðist í ákveðið umbreytingar-
starf, en því starfi sé nú lokið.
„Þá skiptum við félaginu upp í
þrjár meginstoðir fasteignafélagið
Festingu, Olíufélagið ehf. sem sá um
sölu og dreifingu olíunnar og síðan
fjárfestingafélagið Ker. Þá lögðumst
við í uppbyggingu á starfsemi félags-
ins á höfuðborgarsvæðinu en þeirri
vinnu er nú lokið og félagið með for-
ustu á þessum markaði í dag,“ sagði
Ólafur.
Í dag er Olíufélagið stærsti sölu-
aðili eldsneytis á Íslandi og nam salan
á síðasta ári um 350 milljónum lítra.
Félagið rekur samtals um 100 þjón-
ustustöðvar um allt land og 10 sér-
verslanir sniðnar að þörfum stórnot-
enda. Um 400 starfsmenn starfa hjá
Olíufélaginu, en það er með samning
við ExxonMobil og einkaleyfi á notk-
un vörumerkisins Esso á Íslandi.
Olíufélagið til sölu
Morgunblaðið/Arnaldur
Til sölu Olíufélagið er stærsti söluaðili eldsneytis á Íslandi, seldi á síðasta
ári um 350 milljónir lítra af eldsneyti og starfsmenn eru um 400.
Félagið velti
24 milljörðum
á síðasta ári
Kristján Torfa Einarsson
kte@mbl.is
● BREYTINGAR voru gerðar nú um
áramót á yfirstjórn eignarhaldsfélags
L&H, móðurfélags lyfjaverslana Lyfja
og heilsu. Hrund Rudolfsdóttir, sem
starfað hefur sem framkvæmdastjóri
Lyfja & heilsu, hefur tekið við starfi
framkvæmdastjóra móðurfélagsins.
Hjalti Sölvason hefur verið ráðinn
framkvæmdastjóri Lyfja og heilsu í
hennar stað. Þetta kemur fram í
fréttatilkynningu frá Lyfjum og
heilsu. Arnar Hallsson hefur tekið við
starfi rekstrarstjóra og Rúnar Hösk-
uldsson við starfi markaðsstjóra.
Þá hafa höfuðstöðvarnar verið
fluttar að Bæjarhálsi 1 og nýtt skipu-
rit verið tekið í gagnið sem felur í sér
að leyfishafar í lyfjaverslunum Lyfja
og heilsu heyra nú beint undir fram-
kvæmdastjóra.
Breytingar hjá
Lyfjum og heilsu
STJÓRN Íslandsbanka ákvað á fundi eftir lokun mark-
aðar á mánudag að nýta sér heimild frá síðasta aðalfundi til
að selja 1.000 milljón nýja hluti í bankanum. Verð bréfanna
var 18,6 krónur á hlut eða samtals 18,6 milljarða króna.
Alls óskuðu 80 fagfjárfestar eftir hlutafé fyrir samtals 29
milljarða króna sem er 56% umfram eftirspurn.
Þá voru einnig seldir áður útgefnir hlutir, eða um 4% af
hlutafé félagsins, sem Íslandsbanki keypti af Straumi-
Burðarási fjárfestingarbanka í sjálfum sér, fyrir um 10
milljarða króna á genginu 18,6.
Eftir sölu hinna nýju hluta eru útistandandi rúmir 14
milljarðar hluta í Íslandsbanka.
Þrjár tilkynningar birtust í Kauphöllinni gær um kaup
innherja og fjárhagslega tengdra aðila á alls 260 milljón
hlutum fyrir samtals um 4,8 milljarða króna. Um var að
ræða kaup Bjarna Ármannssonar, forstjóra Íslandsbanka,
á 50 milljón hlutum, Karls Wernerssonar, stjórnarfor-
manns bankans, á 162 milljón hlutum og Róberts Melax,
stjórnarmanns, á 48 milljón hlutum. Andvirði þeirra við-
skipta er alls tæpir fimm milljarðar króna.
Aðalfundur 21. febrúar
Stjórn bankans ákvað einnig að leggja til við aðalfund fé-
lagsins, sem haldinn verður 21. febrúar nk., að bjóða hlut-
höfum að fá allt að helming arðgreiðslu ársins 2006, fyrir
árið 2005, í formi nýrra hluta í félaginu á verði sem mun
ekki verða hærra en 18,6 krónur á hlut.
Þá var einnig ákveðið að kaupauki starfsfólks bankans
verði greiddur í formi hlutafjár og mun starfsmönnum gef-
ast kostur á hlutafé í félaginu á ekki hærra verði en 18,6
krónur á hlut. Ákvörðun um fjárhæð kaupauka starfsfólks
og tillögu til aðalfundar um arðgreiðslu, verður tekin á
stjórnarfundi 31. janúar nk. þegar reikningar ársins 2005
verða afgreiddir og kynntir.
Nýtt hlutafé í Íslands-
banka fyrir 18,6 milljarða
Þrír stjórnendur keyptu bréf fyrir tæpa 5 milljarða
Nýtt hlutafé Stjórn Íslandsbanka ákvað að gefa út
1000 milljónir nýrra hluta í bankanum.
● ÞRÁTT fyrir að General Motors,
stærsti bílaframleiðandi heims, hafi
átt í vandræðum að undanförnu var
sala ársins 2005 meiri en á síðustu
27 árum þar á undan.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá
félaginu en þar segir jafnframt að
mestur árangur hafi náðst í Asíu og
S-Ameríku. Alls seldust um 9,2 millj-
ónir bifreiða frá GM miðað við bráða-
birgðatölur félagsins frá síðasta ári.
Metár hjá GM
RÍKJUM á EES-svæðinu er ekki
stætt á að neita fyrirtækjum um að
draga frá tekjum sínum tap sem
myndast hefur í
erlendu dóttur-
félagi á EES-
svæðinu. Þetta er
þá háð því að við-
komandi ríki
heimili slíkt ef
um væri að ræða
innlenda sam-
stæðu og að er-
lenda dóttur-
félagið geti ekki
nýtt tapið í heimaríki sínu. Er þetta
niðurstaða Evrópudómstólsins sem
fram kom í máli Marks & Spencer
gegn breskum yfirvöldum sem féll í
desember síðastliðnum. Hafi dótt-
urfyrirtækið ekki frekari möguleika
á að draga tap frá tekjuskatti í
heimaríki sínu, þ. á m. að færa tapið
á milli ára, ber heimaríki móður-
félagsins að leyfa frádrátt frá
tekjum móðurfélagsins ef slíkt væri
heimilað ef um væri að ræða innlent
dótturfélag.
Íslenska ríkið skuldbundið
Páll Jóhannesson, lögfræðingur
hjá Deloitte, segir íslensk tekju-
skattslög heimila samsköttun
tveggja eða fleiri hlutafélaga með
þeim hætti að hægt er að nýta tap
innan samskattaðrar samstæðu.
Ekki sé hins vegar gert ráð fyrir
nýtingu taps sem myndast hefur er-
lendis. „Ljóst er að íslenska ríkið er
skuldbundið af niðurstöðu Evrópu-
dómstólsins enda reynir þar á hið
svonefnda fjórfrelsi sem íslenska
ríkið innleiddi hér á landi með EES-
samningnum.“
Páll segir að eins og staðan er í
dag kunni að vera verulegir fjár-
hagslegir hagsmunir fyrir mörg ís-
lensk fyrirtæki sem starfa jafnframt
á erlendum vettvangi.
Skattadagurinn á morgun
Á skattadegi Deloitte á Nordica
hóteli í fyrramálið, fimmtudag,
verður Kristján Gunnar Valdimars-
son, forstöðumaður hjá Landsbanka
Íslands, meðal fyrirlesara og fjalla
þar um áhrif Evrópuréttar á ís-
lenskar skattareglur. Verður m.a.
drepið á málum Marks & Spencer.
Morgunfundur Deloitte stendur frá
kl. 8.15 til 10.30.
Nánari upplýsingar um fundinn
eru á vefnum www.deloitte.is.
Íslenskar
skattaregl-
ur í and-
stöðu við
Evrópurétt
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
Páll Jóhannesson