Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1997, Blaðsíða 36
Samsetninq
f lotans _
Hlutdeild hvers
stærðarflokks
í fiskiskipa-
flotanum miðað
við brúttó-
rúmlestir.
JD
JD
-r- (0
§ <2
JD }
§ 8
O
sá
0) B
■d CM
X5 0> T-
C) ni
“> M f
2 ís §
Togarar
□
501
□
201-500
□
111-200
□
51-110
21-50
13-20
□
0-12
Óttar Guðlaugsson skipstjóri á Auðbjörgu
frá Ólafsvík er svartsýnn á áframhaldandi
útgerð bátaflotans
Þetta er orðið
tómt brjálæði
„Mig minnir að hér hafi verið 32 frelcar en
36 vertíðarbátar, frá 90 og upp í 250 tonn.
Nú eru ekki eftir nema níu bátar og þeir allir
litlir nema tveir. Þá voru hér um tíma fjórir
togarar, tvö frystihús og ein ellefu fisk-
vinnslufyrirtæki. Þetta er allt meira og minna
horfið. Þetta er orðið tóm brjálæði og ekkert
annað,“ sagði Óttar Guðlaugsson skip-
stjóri á Auðbjörgu frá Ólafsvík um fækkun
vertíðarbáta.
„Það er ýmislegt sem veldur þessu. Auð-
vitað hefur þetta verið þrælleiðinlegur starfi,
menn fengu úthlutað litlum kvóta og síðan
eru svo miklir peningar komnir í spilið.
Menn héldu að þeir gætu lifað sældarlífi til
eilifðar með því að selja kvótann sinn,“ sagði
Óttar. Og hann bar saman ástandið núna og
áður:
„Hérna vorum við með tvær stærstu salt-
fiskverkanir á landinu. Þegar best lét voru
ellefu vinnslustöðvar í Ólafsvík og tvö stór
frystihús. Nú eru hér tvær litlar salt-
fiskvinnslur og eitt lítið frystihús sem hefur
haldið lífi í liðinu. Það hús er tiltölulega
nýtilkomið. Þetta er allt og sumt sem eftir er.
Það er kvótakerfið sem veldur þessari hnig-
nun og allt það brask sem því hefur fylgt.
Kvótamenn hafa selt frá sér stóru bátana og
keypt minni bát og síðan enn minni bát eða
engan bát. Það eru ekki nema nokkrir vit-
leysingar sem hanga enn í þessu stússi," sagði
Óttar Guðlaugsson. ■
Farsæll SH, einn af þeim vertíðarbátum sem enn er í útgerð.
COOL TREAT 237
Fyrir ferskvatnstanka
KEMHYDRO - salan
Snorrabraut 87 • 105 Reykjavík
Sími: 551 2521 • Fax: 551 2075
36
SJÓMANNABLAÐIÐ VfKINGUR