Andvari - 01.01.1895, Qupperneq 28
XXVI
um auðnaðist að halda 1882 minningardag 25 ára á-
nægjulegs og farsæls hjúskapar. Börn þeirra eru:
1. Ragnhild, fædd 1858, giptist 1877 sjóliðsforingja,
nú kommandör Koch, andaðist 19. Júlí 1880.
2. Jón, fæddur 1860, stúdent frá Reykjavíkurskóla
1877, las lögfræði við Kaupmannahafnarháskólá,
tók próf með 1. eink. 1883, er nú assistent í
hinni ísl. stjórnardeild.
3. Ólafur, fæddur 1861, stúdent frá Reykjavíkur-
skóla 1879, las lögfræði við háskólann, tók próf
með 1. eink. 1885, er nú assistent í dómsmála-
stjórninni.
Þessi 3 eldri börn eru öll fædd i Suðurborg.
4. Arni, fæddur í Kaupm.höfn 1864, stúdent frá.
Rvik.skóla 1881, sigldi til háskólans samsumars,
en drukknaði á skemmtisiglingu í Júlí 1882.
5. Anna Hilma, fædd í Rvík 1868, og
6. Olufa, fædd samastaðar 1869, báðar ógiptar hjá
móður sinni.
Eins og Hilmar Finsen var yfir höfuð lánsmað-
ur, svo átti hann og því dýrmæta láni að fagna, að-
vera hamingjumaður í hjúskap sínum og heimilislíft
og eignast allstóran hóp mannvænlegra barna. En.
þau hjón reyndu og þá þungu sorg, að verða að'
sjá með skömmu millibili á bak 2 af börnum sínuim
uppkomnum. Þetta mótlæti, eins og hvað annað'
mótdrægt, sem fyrir kom, tók Hilmar Finsen með
stillingu og undirgefni, því hann var maður guð-
hræddur og trúrækinn.
Sem vonlegt var, var honum í fyrstu eigi léttr
um að mæla á íslenzka tungu, en þetta lagaðisti
skjótt, og var, einkum. sfðari árin, eigi því til tálm-
unar, að hann gæti á þinginu Ijóst og skipulega .tek-
ið það fram, sem honum þótti nauðsynlegt, málun-