Andvari - 01.01.1895, Síða 49
19
mjög litlu vatnsmegni, af vatninu er dálítið kolsýru-
bragð og járnbragð. Yfir Hoffellsá fórum við á
sléttum aurum niður af Hoffelli, sú á er jökulá og
töluvert vatnsmikil; Austurfljótin lögðust nú svo að
austurlandinu, að margar kvislar runnu úr þeim í
Hoffellsá; var þar kvíslanet um eyrarnar, surair ál-
arnir allvatnsmiklir og blautar eyrar á milli. Hof-
fellsdalur er á báða vegu girtur háum og hömrótt-
um blágrýtis-fjöllum, áin kemur úr Hoffellslamba-
tungum úr skriðjökulstanga, er þar gengur niður í
dalbotninn. Þangað til um 1640 var allopt farið
fjallasýn frá Hoffelli i Fjótsdalshérað, en sá vegur
var talinn rúm dagleið1; fjallvegur þessi tókst af
vegna jökla; hafa skriðjöklar við botn Hoffellsdals
og Skyndidals líklega hlaupið lengra fram. Hjá
Hoffelli fórum við yflr Hornafjarðarfljótin, Austurfljót-
in voru mikil og ströng og voru dýpstu kvíslarnar i
bóghnútu, Vesturfljótin voru líka mikil, en þó minni
og mjög lygn, en þar er sífelldur bleytuvaðall; þeg-
ar eg aptur kom sunnan úr Oræfum var vatnsmeg-
in fljótanna eflaust þriðjungi minna. Vesturfljótin
falia um leirur, en Austurfljótin um stórgerða aura.
Bak við dalina er Vatnajökull hér fremur lágur,
marflatur og tindalaus, en liækkar þegar kemur
vestur fyrir Viðborðsfjall. Milli fljótanna er fjall,
sem heitir Svínafell og bær framan undir því, úr
Vatnajökli gengur breiður armur beint niður á Svína-
fell milli Hoffellsfjalls og Gæsaheiðar, hann klýfst
um Svinafell og koma Austurfljótin úr Hoffellsjökli
austan fellsins, en Vesturfljótin úr Svínafelisjöldi
vestan Svínafells. Út af Gæsaheiði er Geirstaða-
1) Chorographica islandica.
8vo (fol. 82).
Hdrs. Á. M. Kmh. nr. 213,
2*