Andvari - 01.01.1895, Page 201
171
■ ar á brúnina, en í sarna vetfangi stigu 5 risar frara
í þokumökkvanum, umgirtir margföldum, regnboga-
litum geislabaug. — Við staðnæradumst gagnteknir
af þessari mikilfenglegu og óvæntu sýn og störðum
ura liríð undrandi á þessar tröllauknu þokuverur.
’Við tókum ofan og hneigðum ok*kur með lotningu og
aðdáun, og eins og vænta mátti tóku skuggatröllin
’kveðju okkar og hneigðu sig djúpt fyrir dvergun-
ura, sem stóðu á fjallsbrúninni. — En von bráðar rofn-
aði töfraskuggsjáin, sem þokan liafði myndað og hin
•dýrðlega loptsýn, sem jeg gleymi aldrei, hvarf okk-
ur samstundis, »forklárun okkar á fjallinu* var lok-
ið, við stóðum einir eptir lítilmótlegar mannskepnur,
sneruni okkur við og skunduðum sem liraðast upp
eptir hinum líðandi melahöllum, sem ganga niður
undan jökulrótunum.
Gróður er lítill en þó nokkur á þessum aur- og
melaflákum, sem snjóvatnið frá jökulfönnunum að
ofan seitlar um og heldur sirökum og köldum. — Uppi
við frambrúnina var sumstaðar dálítill mosagróður,
•en af æðri plöntum voru þessar fjallaplöntur helstar:
Catabrosa algida, ofurlítil gulgræn punttegund, sem
jeg fann fyrst í Brekkuskarði í Möðruvallafjalli;
hafði hún ekki fundist fyrri hjer á landi; ennfrem-
ur;jöklasóley (Ranunculus glacialis), dvergasól-
ey (JR,. pygmœas), Cerastinum trigynum (lækjafræ-
hyrna), Saxifraga rivularis (lækj astei n brj ótur),
Luzula confusa (f j allhær u-sef), Alsine. biflora (f j alla-
murta), Carex layopina (rj úp nastör), og loks hin
smávaxna, sjaldgæfa hrafnaklukku-tegund (Car-
datnini bellidifolia), sem enn liefur óvíða fundist og
ekki nema á háfjöllum. — í Barkárdalsbrúnunum
fann jeg meðal annars Erigeron uniflorus, sem er