Andvari - 01.01.1895, Side 46
16
Búskapur er í góðu lagi í Nesjum og heflr mik-
ið farið fram á seinni árum, nú eru liér penings-
hús fyrir allt fé, en fyrir 20—30 árum voru engin
hús fj^rir sauði, þeir voru reknir í skjól við kletta
og undir garða eða í byrgi. í þessum byggðarlög-
um er optast fremur heitt á sumrum og garðávöxt-
ur heppnast vel* 1, heyskapur er liér optast góður,
en afréttur því nær enginn og er það aðalgalli sveit-
arinnar. Smáhlöður sá eg hér víða við einstök hús,
kringlóttar með toppmynduðu þaki, þykja verjast
vel rigningu og rúma vel að tiltölu. Á fiestum bæj-
um er góð bygging og þar sem jeg kom (á 6 bæi)
var alstaðar þrifalegt og snyrtilega frá gengið. Húsa-
garðar eru hér á flestum bæjum, eins og alstaðar í
Skaptafellssýslum, bak við bæinn i hálfhring, fram-
an við bæi eru þeir nú hvergi síðan kálgarðar fóru
að tíðkast, því þeir eru hér sem annarsstaðar fram
af bæjunum. Fyrrum voru bæir opt byggðir fram-
an í hólum og var apturhluti bæjarins grafinn inn i
hólinn til skjóls og hlýinda, þá voru garðarnir hent-
ugir til þess að varna skepnum að ganga fram á
húsþökin. I Skaptafellssýslum eru eldhúsin því nær
alstaðar sérstök og ekki innangengt í þau úr bæn-
um. Nesjamenn standa í búnaði, þrifnaði og húsa-
byggingum fullkomlega jafnfætis hinura betri svoit-
um á Norður- og Austurlandi, en aptur eru menn á
Mýrum og í Suðursveit skemmra komnir og þar er
bæjabragur svipaður því, sem er á Suðurlandi sum-
staðar, t. d. í neðri hluta Árnessýslu. Nesin hafa
auðsjáanlega tekið miklum framförum á seinni tím-
um, þar sem menn daglega hafa fyrir augum skribjöklana og
sjá spellvirki þau, sem árnar gera.
1) Nú í sumar voru kartöíiur fullþroskahar sumstaðar
í görðum í Suðursveit 3. ágúst.