Andvari - 01.01.1895, Side 91
61
•og látúni; á milli þessarar Grafar og Hoís er stein-
ker, sem sagt er taka 18 tunnur, kallað af þeim,
sem nú eru í Hofi, Sýruker og af því kallað, að
íyrrmeir í nú elztu manna tíð hér á Hofi, þá söfn-
uðu menn í það sýru, hver eptir sínum efnum; var
þá byggt hús ofan yfir, er nú er aflagt, þar fyrir,
að þegar fé á vorin var þar á beit, datt það ofan
í þessa sýru og dó; var svo fellt húsið ofan í kerið
og sést nú á barmana. Gröf (Innri-Gröf) heyri eg
og sagt bær heitið hafi, það er nær hestskeið frá
áðurnefndri Gröf og hefir nýlega sézt til tópta; báð-
ar í Iiofslandi. Hreggás er talað bær heitið hafi
vestur af Hofsnestanganum fyrir vestan götuna, þá
er liggur til Hofs, hefir nýlega sézt til tópta og garðs.
Eyrarhorn hefir bær heitið, Kirkjustaður, sem bevís-
ast af Hofsmáldaga; orðin hljóða svo: »gjörði sá
virðulegi herra og andlegi faðir bróðir Magnús bisk-
up í Skálholti1 þessa eptirskrifuðu skikkun með ráði
allra þeirra kennimanna, sem þá voru þar saman
komnir, að allt það sem átt hafði kirkjan að Eyrar-
horni, lönd og reka og ítök, það sem eptir var
óspjallað, þá skyldi það leggjast til kirkjunnar að
Ilofi eptir þenna dag« etc. Halda menn þessi bær
staðið hafi út af Ilofi vestur af Nesi, en fyrir ofan
Ingólfshöfða; það er og í orði, að rauðviðisstólpinn,
sem fyrir utan kallmannastólinn er sunnan fram í
Kálfafellsstaðarkirkju í Hornafirði sé úr kirkjunni
á Eyrarhorni«.
Af því sem hér hefir verið sagt að framan, má
sjá, að byggð hefir til forna verið • miklu meiri í
I) Magnús Eyjólfsson f 1490. Arið 1482 lagði Magnús
biskup eigur Eyrarkorns undir Hof.