Andvari - 01.01.1895, Page 107
77
fjallanna austan og norðan við dalinn og eru þar
viðast urðir ofan á. Hálendið hér efra er allt þak-
ið blágrýtisurðum, öldumynduð liolt og sker, lágar
bungur og hálsar; þetta urðaland tekur yfir geysi-
mikið svæði; það nær frá Vatnajökli niður undir
Skriðdal og Hérað, um hálendisbungurnar allar milli
dalabotnanna og Jökulsár í Fljótsdal. Alþýða manna
í næstu byggðarlögum kallar þetta svæði »Hraunin«;
orðið »liraun« er á Austurlandi brúkað um urðir,
klappaholt og hrjóstrugt land; brunahraun eiginleg
eru hér hvergi til. Botninn á Víðirdal nær hér um
bil jafn langt norður eins og innsti sporðurinn á
Hofsjökli; jökull þessi er fremur lítil) og töluvert
minni en Þrándarjökull; norðurhluti Hofsjökuls er
ávöl hjarnbunga í einu lagi og íshamrar í röndum
jökulsins, en suður ganga ýmsar fjallseggjar með
hjarnsköfium og mörgum tindum og verður jökull-
inn þar sumstaðar sundurlaus á köflum, svo varla
mátelja liann eina heild; áeggjum þeim, sem ganga
út að Flugustöðum, er Jökulfellstindur hæstur; þann
tind kalla Lónmenn Ilrútatóartind; Afréttartindur er
hár tindur nokkru vestar; út af Hofsjökli eru enn
fremur Tungutindar, Knappadalstindur o. m. fl. Fyr-
ir ofan Hofsjökul er fjallsbunga eða múli, sem heit-
ir Ifnúta og er lægð á milli; Ifnúta er eiginlega
höfði fram af liraununum og er jafnhá hinum innri
urðarliryggjum. Innri-Þverá, sem rennur í Viðidalsá,
kemur úr Hnútuvatni; austur af því vatni er annað
vatn, sem Geithellnaá kemur úr; Hamarsá lcemur
úr lækjum norðan við Þrándarjökul og er hún skakkt
sett á Uppdrætti íslands. Upp af Víðidal gengur
grunn dæld all-langt upp eptir milli Kollumúla og
Ilnútu og ganga þau saman fyrir norðan dældina;
niður þessa hvilft rennur Viðidalsá gegn um ein-