Andvari - 01.01.1895, Síða 52
22
og er opt örðugt fyrir prestinn að komast þangað,
af þvi Hornafjarðarfljót eru á milli.
Um morguninn 29. júlí fórum við frá Rauða-
bergi og Gísli hreppstjóri með okkur. Var þá gott
veður, að eins lítilfjörlegar þokuslæður í fjöllum um
morguninn með nokkrum úða. Upp af Rauðabergi
gengur Kolgrafardalur austan við Fláfjall, niður í
dalbotninn gengur skriðjökuls-tangi og rennur undan
honum jökulkvísl niður í Ðjúpá, en hún kemur und-
an austurhorni Fláajökuls. Fórum við fyrst yfir
Djúpá og svo niður bakka hennar, um harðvelli,
góðan veg, en beygðum svo aptur vestur á við og
riðum um sléttlendi kippkorn fyrir neðan Fiáajökul.
Jökull þessi er mjög stór falljökull og breiðist út
hið neðra, er hann kemur á jafnsléttu, hann gengur
niður á milli Fláfjalls að austan og Heinabergsfjalla
eða Austurfjalls að vestan; rönd jökulsins er mjög
sprungin og aurdrifin, sést þar í ótal bláar sprungur
innan um hvitgráar jökuleggjar, í sumar var tölu-
vert mikill ganguríjökli þessum, enda er hann opt
ókyrr og var hann nú genginn fram á jökulöldur,
sagði Gísli bóndi, að hann á 12 árunum siðustu,
hefði þrisvar gengið fram og þrisvar aptur. Austast
rennur Djúpá undan jöklinum, og þá ýmsir lækir
og kvíslar, t. d. • Hleypilækur og Iioltalækur, en aðal-
vatnið fer í Hólmsá, hún kemur úr vesturhorni
jökulsins og er mjög mikið vatnsfall, þar sem Iiólmsá
kemur undan jöklinum var stór hvilft íbjúg frá
austri til vesturs og hefir þar ef til vill sigið þakið
á árræsinu. Heinabergsfjöllin vestan við jökulinn
eru langur fjallaskagi íslaus, er gengur hátt upp á
jökul og er Ofæru-Múli upp af þeim; vestan við
þessi fjöll er Heinabergsdalur og fyrir vestan hann
háls, er skilur hann frá Heinabergsjökli hinum eystri,