Andvari - 01.01.1895, Síða 78
48
dalssandi; á Kotáraurum eru t. d. Svartijökull, Gras-
jökull (grasivaxinn hóll) o. s. frv.; jökulnafnið bera
hólar þessir eflaust sakir uppruna sins. Þegar
kemur norður af þessari aurabungu, kemur prests-
setrið Sandfell; það stendur í kvos milli tveggja
aurbungna og er hin nyrðri mynduð af jökli þeim,
er Falljökulskvísl kemur úr; milli malarskriðnanna
liggur frá bænum græn mön niður að Skeiðará, en
aðalengjarnar eru neðar og sunnar, svo þær sjást
ekki frá bænum. Á Sandfelli gisti eg hjá síra Ólafi
Magnússyni, og var hann mér mjög liðsinnandi og
leiðbeinandi þar í Öræfum. Sama kvöldið kom Stefán
kennari Stefánsson að Sandfelli vestan úr Fijóts-
hverfl; líklega hefir það verið í fyrsta sinn, að tveir
íslenzkir náttúrufræðiugar hafa mætzt á Sandfelli.
Hin'n 3. ágúst fór eg upp að Skaptafelli og fylgdi
síra Ólafur okkur báðar ieiðir. Úr Falljökli eða
Virkisjökli er kemur niður skarð fyrir norðan Sand-
fell rennur Falljökulskvlsl og Neðri- og Efri-Virkisá;
þær eru strangar og stórgrýttar, en ekki vatnsmikl-
ar. Þar fyrir neðan eru margir grjóthólar og gamlar
jökulöldur, sem líklega hafa myndazt við hlaupin á
14. öld. Norðan við grjótbungur þessa jökuls kemur
aptur gróðrarblettur, og þar stendur Svínafell uppi
undir fjallinu, og er þar rajög fagurt bæjarstæði; á
Svínafelli eru 5 býli; vestasti bærinn heitir Breiða-
torfa, vestari miðbærinn á Böltanum, eystri miðbær-
inn Svínafell, austasti bærinn Stekkatún. Fyrir ofan
bæina er giljótt móbergsfjall, í því er góð beit, en
fé kemst þar opt í svelti i móbergshömrunum og
er illt að ná því; i fjallinu er Flosahellir. Upp af
bæjunum eru grænar brekkur með skógarkjarri,
lækur með háum fossum rennur niður hjá miðbæn-
um, á hjalla við lækinn rétt fyrir ofan bæinn er