Andvari - 01.01.1895, Page 50
20
skógsheiði og dalverpi (Gæsadalur) á railli, en vest-
an við þessa hálsa kemur niður þriðji jökultanginn
milii þeirra og Viðborðsfjalls, úr jökli þessum (Við-
borðsjökli) rennur kvisl i Vesturfljótin. Hálsar þess-
ir mynda ey í jökulröndinni, þeir eru allir úr blá-
grýti. Á aurunum við Vesturfljótin er einstakt, stórt
klappaholt, sem heitir Stóra-Díma, og annað minna
innar, er heitir Litla-Díma1. í Hornafjarðarfljótum
er mikil jökulleðja, þar sem þau flæða yfir sprettur
ágætlega, en verður grasbrestur ef þau leggjast frá;
jarðvegur í Nesjum er víða mjög leirblendinn, og
þegar hvassviðri ganga, rýkur mikið leirdust úr
þurrum flögum og þó einkum af fljótsaurunum. Þeg-
ar kemur vestur yfir Fijótin, tekur við brött fjalls-
hlíð, Viðborðs- eða Vindborðsfjall, fja.il þetta er hátt
og mikið ummáls allt úr blágrýti og ganga út und-
an því hamraholt; rétt fyrir sunnan bæinn Viðborð
er gil mikið í fjallinu, er gengur langt upp eptir
þvi; fram úr gljúfrinu berst mjög mikið af grjóti í
vatnavöxtum og hefir það mjög spillt þessari jörð.
Um kvöldið komum við að Rauðabergi (eða Raufar-
bergi) er stendur vestan undir fjallinu og náttuðum
okkur þar.
Frá Viðborðsmúlanum er góð útsjón yfir austur-
partinn af Mýrunum, þar er viðáttumikið sléttlendi
allt grænt og grasi vaxið með klappaholtum upp úr
litlum og strjálum, og standa bæirnir víða við holt-
in, túnin eru fremur lítil og flest uppi á holtunum, en
mýrar strax fyrir neðan; jökulleir og sandur er al-
staðar undir jarðvegi og slægjur eru hér sumstaðar
1) Sbr. Dímu við Jökulsá í Lóni, Stóra- og Litla-Dimon
á Markaríljóts-aurum, Dimon við Þjórsárdal, Dimonarklakkar
. og Dimonarvogur á Breiðafi.r'ði, Dimonar á Færeyjumo.s. frv