Andvari - 01.01.1895, Síða 80
50
og lægstu tungu þessa hálendis, þar sem það skag-
ar lengst fram á aurana, er bærinn Skaptafell; er
mikill munur á því að sjá hve brekkurnar og hæð-
irnar eru grösugar í samanburði við bera og bláa
sandana fyrir neðan, jökulvötnin drottna yfir lág-
lendinu og skafa af því hverja gróðrartægju, en í
brekkunum og hálsunum er þau ná eigi til, fær
frjóvgunarmagn jarðvegsins og hádegissólin, sem
brekkurnar blasa á móti, óátalið vald til að sýua
afl sitt. Bærinn Skaptafell stendur utan í hálsinum,
efsti bærinn 420 fet fyrir ofan aurana, þar eru fagr-
ar skógarbrekkur utan í hlíðinni og tvö gil með
fossum og stórum skógi fyrir neðan bæina, þessi gil
eru einhverjir hinir fegurstu blettir á Suðurlandi, þar
skiptast á einkennilegir klettar og gljúfur, vall-lendis-
brekkur með fögrum blómum, fossar og laufmikil
birki- og reynitré er breiða limið yfir bergin, foss-
ana og gljúfrin. I nyrðra giliuu eru trén stærst og
fegurst, birkihrísla sem þar stendur frmn á snös er
21 fetáhæð, þráðbeint reynitré með miklu laufskrúði
stendur ofar við gilið og er 30 fet á hæð; það er
hin hæsta reynihrfsla, sem eg hefi séð hér á landi;
mörg önnur há birki- og reynitré eru þar í giljun-
um, þó þau séu ekki eins stórvaxin eins og þessi.
I Skapfafelli eru þrír bæir, neðsti bærinn heitir í
Böltanum, miðbærinn Sel, efsti bærinn Hæðir; bæ-
irnir voru fyrrum neðar, nærri neðst í hlíðunum
niður undir aurum og sjást enn tóptirnar, vegna
hlaupa úr Skeiðará, sem allt af er að verða nær-
göngulli við austurlandið, var bærinn fluttur burt.
Seinni hluta dags riðum við inn brekkur fyrir ofan
Skaptafell, þar er brött hliðin niður að sandinum
og Skeiðará fyrir neðan, þar eru margar skorur og
þvergil og öll hlíðin vaxin smáskógi, niður á sandana