Andvari - 01.01.1895, Side 113
83
um og fossum. Seinni hluta dags dreif yfir þoku
og gerði rigningarhraglanda og hvassviðri um kvöld-
ið.
Hér verð eg að skilja við lesendurnar uppi á fjöllum og
láta framhald íerðasögunnar, sem þó er búið að setja, bíða
næsta Ars, sökum þess, að hinar pólitisku ritgjörðir, er hér
koma á eptir, urðu að komast í heilu lagi i þenna árgang;
þó heíi eg fengið leyfl. til að láta litla grein, er snertir ferða-
söguna 1893, fylgjast hjer á eptir með smáu letri.
í ferðasögunni í fyrra (Andvari XIX. bls. 98) gat eg þess,
að lítil kvísl úr suðurenda Langasjós síast gegn um sandöld-
ur niður í Kótagil, annað útrennsli úr Langasjó sáutn við
ekki, enda gátum við ekki komið því við að rannsaka austur-
enda Fögrutjalla nákvæmlega. Niður í austurenda Langa-
sjós gengur skriðjökull og í vatnið rennur mjög mikið í leys-
ingum á vorin; einhversstaðar hlaut því að vera vatnsmeira
afrennsli en litla kvíslin við Rótagil. Nú er nyrðra útfall
Langasjós fundið. Skaptárfjallgarðurinn (Fögrufjöll) var nú
i haust (1894) í fyrsta sinni genginn og leitaður og fannst
þá útfall vatnsins skanrmt fyrir neðan jökulröndina í Skapt-
árbotnum ; ströng kvísl rennur gegnum djúpt skarð, er klýf-
ur fjallgarðinn niður undir rætur og myndast af kvísl þess-
ari lón sunnan undir fjallgarðinum; lón þetta er lukt háum
öldum svo það sést ekki fyrr en rótt er komiö að því; úr
því rennur kvísl í Skaptá; öldurnar bafa skyggt á, svo við
gátum í fyrra ekki séö lón þetta úr Skaptárbotnum. Guð-
mundur Guðmundsson vinnumaður á Svartanúpi heíir skrif-
að mér um Skaptárfjöllin og hið nýfundna útí'all Langasjós
og sent mér uppdrátt af landslaginu kringum útfallið og lón-
ið, eptir því sem hann sá og teiknaði af öldunum sunnan við
vatnið. í bréii sinu (21. október 1894) segir Guðmundur:
»Skaptártjaligarðurinn f'Fögrufjöll) er klofinn eptir endilöngu,
gengur annar fjallgarður miklu lægri og óreglulegri jafnhliða
hinum austur með Langasjó og er liann kloíinn af djúpum
hvylftum niður í rætur; drög af honum ná austur að útfalli,
en lengra ekki. í lægðinni sunnan undir honum eru litil
6*