Æskan

Årgang

Æskan - 01.09.1974, Side 48

Æskan - 01.09.1974, Side 48
— Teikningar: JON SKARPRUD — Texti: BERNHARD STOKKE ÞýSandi: SIGURÐUR GUNNARSSON 1. Loksins hættir Bjarnarkló á það að kiifra niður og hefja leit að bróður sínum. Hann kallar lágt í fyrstu, en þegar hann fær ekki svar, hækkar hann róminn. Þá brakar skyndilega f skóginum á ný, og stóri villigölturinn kemur þjótandi. ■— 2. Bjarn- arkló kemur ekki heim fyrr en að kvöldi næsta dags, og mamma verður hrædd, þegar hún sér, að hann er einn á ferð. Og Bjarnarkló verður ekki síður hræddur, þegar hann heyrir, að Oddur er enn ekki kominn. Bjarnarkló ákveður að halda leitinni áfram daginn eftir. — 3. Mæðginin verða innilega glöð, þegar Oddur kemur heim seint um kvöldið með grísinn, sem hann hefur skotið, á bakinu. Hann hafði neyðzt til þess að vera mestallan tímann í trénu, sem honum tókst loks loksins að klifra upp í. Það var eins og villisvínin vissu um hann og væru að gæta hans. — 4.—5. Oddur segir nú mömmu og Bjarnarkló frá því, að næsta morgun verði þau að koma með honum inn eftir, því að hann hafi líka skotið stóra gyltu. Honum hafði tekizt að hafa bogann og örvarnar með sér. Og þegar hann gat loksins bjargað lífi sínu með því að klifra upp í tré, gafst honum gott færi á dýrunum. Það veitti þvi ekki af að fá hjálp við að flá gyltuna og flytja kjötið heim. Skinnið verður ágætt f skó til vetrar og vfgtennurnar f spjótsodda, sem eru sérstaklega góðir til selveiða. — 6. Þau verða að fara margar ferðir til að koma öllu kjötinu heim. Þau hengja það til þerris og geyma það sfðan í jarðgöngunum, þar sem þau voru byrjuð að draga saman vetrarforða. Á þessum ferðum rekast þau oft á litla grísi, sem snúast í kringum hræ móður sinnar. Drengirnir ná þremur þeirra og fara með þá lifandi heim. — 7. Mamma hjálpar drengjunum til að setja upp girðingu handa grísunum. En Það 46

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.