Skírnir - 01.01.1929, Page 45
Skirnir] Daði Halldórsson og Ragnheiður Brynjólfsdóttir 39
viðburðar. Hann lætur skrá hann í afrit sitt af Skarðsár-
annál með þessum orðum:
•Fæddist Ragnheiður Brynjólfsdóttir í Skálholti sjálfa Maríu-
messu síðari in Septembri die 8., sem var miðvikudag, nær fyrstu
klukkustund eftir miðdag, eða þriðjungi eyktar eftir hádegi. Var sá
dagur fæðingardagur sællrar meyjar Mariæ. Guð gefi lukku og bless-
an. Er Ragnheiður heitin eftir biskupsins móður sjálugu] Ragnheiði
Pálsdóttur, en hún var heitin eftir sinni föðurmóður, Ragnheiði Pét-
ursdóttur, sem átti Jón Magnússon á Svalbarði, dóttur Péturs Lofts-
sonar og Sigríðar, systur Cecilíu, sem átti síra Sigurð Jónsson á
Grenjaðarstað«.
Árið eftir fæddist þeim biskupshjónum sonur, og við-
burðurinn er skráður með þessum orðum:
»Fæddur Halldór Brynjólfsson i Skálholti 8. dag Decembris, sem
er sællrar Maríu getnaðardagur, er þá bar á fimmtudag í dögun
sjálfa, sem mundi um dagmál; var tviburi, en annað andaðist áður
skírn«.
Vér sjáum strax, hve ólíkur blær er á þessum tveim
frásögnum biskups um fæðingu barna sinna. Sú um dreng-
inn er þurrari og biskup getur þess ekki, að hann sé heit-
inn eftir móðurföður sínum, Halldóri lögmanni. Dóttur sína
blessar hann við komu hennar í þennan heim, og tilkynnir
hún sé heitin eftir föðurmóður sinni, og rekur ættina, lands-
ins tignustu ætt, sem komin var frá Lofti ríka í beinan
karllegg til Ragnheiðar á rauðum sokkum, móður hinna
nafnkunnu Svalbarðsbræðra: Staðarhóls-Páls, afa biskups,
Magnúsar prúða o. fl. Ættartilfinning biskups er rík, og
kvennafn ættarinnar ber dóttir hans.
Sjö börn alls eignuðust þau biskupshjón, en þessi tvö
ein komust upp, hin öll dóu bráðung.
Um uppeldi Ragnheiðar vitum vér það fyrst, að faðir
hennar hefur Iátið hana læra að lesa á handrit, eins og
þá var enn titt hér á landi. í Bréfabók Þormóðar Torfason-
ar (í Árnasafni) — hann kom í skóla, þegar Ragnheiður
var 6 ára — stendur í bréfi frá honum til síra Torfa í
Gaulverjabæ (dags. 2. marz 1687), þar sem hann falar hand-
rit: »Bók var til í Skálholti af heilögum mönnum, stór, í