Skírnir - 01.01.1929, Blaðsíða 46
40 Daði Halldórsson og Ragnheiður Brynjólfsdóttir. [Skírnir
folio, uppá pergement, sem sá sæli biskup lét börnin læra
að lesa í«.
Fyllri sagnir höfum vér þó frá síra Jóni HalIdórssynL
Hann var fæddur 10 árum fyrir dauða biskups, sonur ein-
hvers bezta vinar hans og náskyldur mörgum öðrum hans
aldavina. Hann segir í Biskupasögum sinum, að Ragnheið-
ur »var snemma skörp, skynsöm og mannvænleg og þar
fyrir mikið eftirlætisbarn föður síns. Þótti honum vænt um
hana og lét bæði kenna henni kvenlegar handyrðir og
þær bóklegar menntir, sem kurteisri kvenpersónu vel
sómdu«. Það er ekki mikill vafi á því, að hinn lærði og
framgjarni höfðingi hefur séð þessu gáfaða eftirlætisbarni
sínu og einkadóttur fyrir eins góðri menntun og framast
voru föng á hér á landi.
Næst verður nafn Ragnheiðar fyrir oss, þegar hún er
12 ára, sumarið 1654. Það er fyrsta sinn, sem hennar er
getið í bréfabókum biskups. Þá er henni gefin 8 hundraða
jörð, Geitavík í Borgarfirði eystra. Gefandinn er Bjarni Pét-
ursson sýslumaður á Staðarhóli, frændi biskups. Mikið vin-
fengi og einhver skuldaskifti höfðu verið með þeim frænd-
um um Iangan tíma. Um veturinn hafði biskup ritað hon-
um bréf, og mælzt til þess, að skuldin yrði greidd. Það
eru 93 rikisdalir, sem staðið hafa í 11 ár, en eru nú með
vöxtum 142 dalir, án vaxtavaxta. (»Þér sjáið að ég reikna
nú ekki rentu á rentu«). Skuldin er greidd á Þingvelli, og
þar fer gjöfin fram 2. júli, með þeim skildaga, »að jörðin
verði sótt réttum lögsóknum að Ásmundi Jónssyni«. En
biskup taldist undan »þetta mál að sér að taka stúlkunnar
vegna, bæði sins embættis vegna og vináttu við Ásmund«.
Sýslumaður sat fast við sinn keip, gaf Ragnheiði jörðina
og afhenti hana í hendur síra Torfa í Gaulverjabæ. Sama
dag gerir biskup Hannes Björnsson, sem þá er í þjónustu
hans (síðar prest í Saurbæ), umboðsmann Ragnheiðar í
málinu og felur honum »að lögsækja og brigða Geitavik
. . . viljandi sjálfur þar öldungis frá vera«.
Þessar frændgjafir til vinfestu tíðkuðust enn á íslandi
alla 17. öld. En fremur mundi syni biskups hafa verið gefin