Skírnir - 01.01.1929, Side 72
66 Daði Halldórsson og Ragnheiður Brynjólfsdóttir. [Skirnir
Skýrslurnar eru teknar af Guðmundi Jónssyni sýslumanni
i Árnessýslu og undirritaðar á Bessastöðum í júlí, hvor
sitt ár.
í skýrslunni frá 1660—61 lesum vér:
»Dade Halldorsson Prestsson med Gudbjörg Sveinsdotter begge
forste frillebrodt gialt 1 Rdl.«
í skýrslunni frá 1661—62 lesum vér:
»Dade Halldorsson med Rángnede Brönolfsdotter, hans andet
og hendes forste galt I'/a Rdl.«.
Sakeyrisskýrslurnar eru nú komnar í Þjóðskjalasafnið
í Reykjavík.
Ákjósanlegri heimildir en þessar embættisskýrslur get-
um vér ekki fengið, og þær fræða oss á, að barn eða börn
Guðbjargar (ekki Guðríðar) Sveinsdóttur hafi fæðst síðast
8 mánuðum á undan barni Ragnheiðar, en geta verið fædd
1 ári og 8 mánuðum fyr. Þau eru að líkindum fædd IV2
ári á undan, en hljóta að vera fædd áður en Ragnheiður
vinnur eiðinn, og til þess eru þessi rök:
Á prestastefnu á Alþingi 1667 var tekið fyrir 3. mál
á dagskrá og skráð í Prestastefnubók biskups með svo-
feldum orðum:
•Framkom Hannes Gunnlaugsson skólapersóna, hafandi sina
vitnisburði góða úr skólanum, en exspectans verið i sex ár, síðan á
þeim tíma opinber orðinn að einföldu meinalausu frillulífisbroti,
sækjandi ráð til sinnar restitutionis hjá þessari prestastefnu. Að öllu
saman vegnu og umþeinktu leitst synodo standa mætti sem hingað
til, að Bþskujpinum sé vítalaust og óhætt þá að restituera, sem einu
sinni svo falla í meinalaust og einfalt legorðsbrot, undanteknnm
drottinsvikum, þar til hans Maj[estet] eða lénsherrann göra þar á
aðra skikkun, eftir tveggja ára ex[s]pectation og teknum heiðurleg-
um og erlegum vitnisburðum, en óskólageingnir menn ei takandi að
stórnauðsynjalausu« (o: í embætti).
Vér sjáum þá, að biskup hefur uppreisnarvald eftir 1.
einfalt legorðsbrot, og beitir því Daða í hag, þegar hann
vígir hann 28. júlí 1661. Af því að Daði á í hlut, gerir
hann þar þá undantekning frá sinni ströngu reglu, tveggja