Skírnir - 01.01.1929, Page 121
Skírnir] Nibelungenlied og hetjukvæðin í Eddu. 115
stafað hætta af þessum mægðum, og gerast flytjendur þessa
máls við systur sína. Hún lætur tilleiðast og mest fyrir þá
sök, að hún þykist sjá líkur til þess að geta komið fram
hefndum, ef hún ætti jafn ríkan konung. Fer hún með sendi-
mönnum, og drekkur Atli brúðkaup sitt til hennar með mik-
illi viðhöfn.
13 ár líða og sitja þau að ríkjum í góðum friði. Þau
áttu son, sem nefndur var Ortliek. Ekki unir Kriemhilde þó
hag sínum, því að hefndarhugurinn er jafn sem fyr. Fær
hún nú Atla til þess að bjóða bræðrum hennar heim, og
ætlaði hún þá að sæta færi við Hagen, er hún vissi að
mundi verða í förinni.
Þegar sendimenn Atla koma til Worms, bregðast þeir
bræður glaðir við þessi boð og vilja fyrir engan mun leggj-
ast ferðina undir höfuð. Hagen þykist sjá, hvað búa muni
undir, en fær ekki talið konungum hughvarf. Býst hann þá
til ferðar með þeim, því að hann vildi með engu móti við
þá skiljast, og fékk ráðið því, að þeir fóru fjölmennir.
í Worms gerast um þessar mundir ýms stórmerki, og
segir mörgum þungt hugur um þeirra ferð, og í margan
háska komust þeir á leiðinni. Loks koma þeir til borgar
Atla; er Þiðrik af Bern þar staddur og biður þá þegar að
vera vara um sig. Kveður hann Kriemhilde hafa þungan
hug á Hagen. Þessu næst ganga þeir til fundar við kon-
ung og drottningu. Tekur Kriemhilde á móti Hagen með
engri blíðu og spyr hann, hvort hann færi sér ekki gullið
mikla, en hann kveður nei við. Skömmu síðar gengur hann
í höll Kriemhilde og sýnir henni sverð Siegfrieds, er hann
tók af honum vegnum; stærir hann sig nú af því, að hann
sé banamaður Siegfrieds. Voru nú viðsjár miklar með mönn-
um, og fær Kriemhilde bróður Atla til þess að fara að
Búrgundum meðan höfðingjar þeirra sátu í höll Atla. Þeg-
ar þeim kemur fregn af þessari atför, vegur Hagen son
þeirra Atla. Slær síðan í bardaga; vörðust Búrgundar úr
höll konungs og urðu ekki sóttir. Lét Kriemhilde þá brenna
höllina ofan af þeim, en þeir fórust ekki í eldinum, en héld-
ust við í rústunum eftir að höllin var íallin. Sótti þá nú
8*