Skírnir - 01.01.1929, Page 177
Cement.
i.
Ódysseifur kemur heim til íþöku eftir 20 ár. Hann hef-
ur lent i ótal raunum, brotið skip sitt og fengið sér aftur
skip, hitt og kvatt aftur fjölda mennskra, hálfmennskra og
goðborinna manna og kvenna og ratað í ótal ævintýri. Hann
kemur heim til íþöku, enginn þekkir hann, því að hann vill
kanna hugi þeirra, sem fyrir eru. Margt er breytt. Nú situr
Laértes í sorgum úti í byggðinni, og í höllinni sitja biðlar
Penelópu að sumbli dag eftir dag og eyða eignum hans.
En þegar öllu er.á botninn hvolft, eru mennirnir sjálfum
sér likir í tryggð sinni og ótryggð. Penelópa heldur áfram
að þreyja hann og Telemakkus fer til annara landa til að
spyrja eftir honum. Ekkert hefur komið fyrir, sem hafi ger-
breytt þessu fólki. Tímarnir eru kyrrlátir og mennirnir lifa
eins og gras, sem sprettur á jörðu.
II.
í skáldsögu sinni, ^CemenK1) segir rússneska skáldið
Fjodor Gladkow frá öðrum Ódysseifi, sem kemur heim til
Iþöku, heim til Penelópu. Þetta er þrjú þúsund árum síðar.
Rússneskur hermaður, Gléb að nafni, kemur heim úr rauða
hernum, eftir að hafa verið þar í þrjú ár. Hann hafði farið
í herinn í miðri byltingunni, flúið hús sitt til að berjast
með félögum sínum, bolsjevíkum. Nú kemur hann aftur,
þreyttur eftir miklar raunir og milli vonar og ótta um,
hversu nú líti út heima fyrir.
*) Fj. Gladkow: Zement . . . Aus dem Russischen tibertragen
von Olga Halpern . . .