Skírnir - 01.01.1929, Page 236
230
Ritfregnir.
[Skirnir
jörð heitir nú Pétursey og virðist mér sú skýring sennilegust á þeirri
nafnbreytingu, að þar hafi verið kirkja eða bænhús helgað Pétri
postula. En ekki er þessa getið í skránni.
47. Reykholt í Reykholtsdal. Höf. telur kirkjuna helgaða Pétri
postula einum og vitnar í D. I. I, 466. Segir og svo í upphafi af af-
skrift hins nafnfræga Reykholtsmáldaga (D. I. I, 470). En í frumritinu
sjálfu á skinni, sem prentað er eftir nokkru siðar, stendur svo:
»Kirkja sú, er stendur i Reykjaholti, er helguð með guði Maríu móð-
ur Drottins, og hinum helga Petro postula, og hinum sæla Dionisio
biskupi og hinni helgu Barbare rneyju* (D. I. I, 476—77). — Engu
að síður er það rétt, að Pétur postuli er að jafnaði talinn nafndýrl-
ingur kirkjunnar, sem mörg rök má leiða að, og meðal annars má.
minna á hina skemmtilegu frásögn í Sturlungu, er þeir frændur,
Sturla lögmaður Þórðarson og Þorgils skarði, gerðu Agli Sölmund-
arsyni heimsóknina í Reykholt og Þorgils bauð öllum félögum sin-
um þar að vera og »látið hesta yðra ganga i tún«. Þá svaraði Sturla
og kvað það ekki ráð, »því að Pétur postuli á töðuna og hefur hann
ekki til saka gert við Þorgils«.
48. Reykir i Flökadal i Fljótum. Ekki talið í skránni. í sálu-
gjafarbréfi frá 1401 stendur: »Maríu minni Magdalene og hennar
bænhúsi að Reykjum í FlókadaÞ (D. I. III, 671).
49. Reykjadalur í Hrunamannahreppi. Höf. getur þess, að í
máldaga Jóns biskups Halldórssonar (D. I. II, 666, sbr. IV. 41 og
VII, 44) er kirkjan talin Maríukirkja, og ekki getið annarar helgunar
hennar. Ekki hef ég rekið mig á neitt í Fornbréfasafninu, sem breyti
því. — En í Jarðabók Árna og Páls er þess getið, að Reykjadals-
kirkja á skógarítak i Tungufellslandi, »þar sem heitir Lúcíuhöfði«
(II, 271). Á sama stað er þess getið, að skógarítak Hrunakirkju heitir
Maríuhrís, enda var þar Maríukirkja. — Þessa ítaks Reykjadalskirkju,
sem kennt er við Lúcíu meyju, er og getið í öllum máldögum henn-
ar, sem nefndir eru hér að framan. í matsgerð Reykjadals (Jarðabók
Á. M. og P. V., II, 261) er beinlínis sagt: »í Reykjadal er Lúciu-
kirkja«; er engin ástæða til að efa þá frásögn, þótt ung sé, er ör-
nefnin styðja hana svo vel, og hefur kirkjan því jafnframt verið
Lúcíu helguð. Lúcia mær var ein af verndardýrlingum Melakirkju
i Borgarfirði og saga hennar var til á Möðruvallaklaustri (D. I.
IX, 196).
50. Reyniuellir i Hornafirði. Þessa kirkju vantar í skrána. í
IX. bindi Fornbréfasafnsins, nr. 154—165, eru birt máldagabrot nokk-
urra kirkna í Skálholtsbiskupsdæmi. Ætlar dr. Jón Þorkelsson, að
þeir séu úr tíð Ögmundar biskups. Þar getur þess, að á Reynivöll-
um er Maríukirkja. Höf. vitnar í þennan stað og telur, að átt sé við
Reynivelli í Kjós. Sést þó við nánari athugun, að það getur ekki
náð neinni átt. Allar hinar kirkjurnar, sem nefndar eru í máldaga-