Blanda - 01.01.1932, Page 18
12
Kroningsberg1). í Polen hef eg séð það dæilegasta2)
kvennfólk af öllum löndum og landspörtum, sem eg
hef komið í, og í Saxlandi, því þess skapning og and- >
litsfegurð er yfirmáta dæileg. — Anno 1673 þann
1. Aug. tók eg og minn stallbróðir okkur far hjá
einum hollenzkum skipherra, sem hét Claus Spont,
að Amsterdam í Hollandi. Honum gaf 1 rd. hvor
okkar fyrir flutning, en við keyptum okkur sjálfir
mat. Þann 3. Aug. sigldum vér frá Kruningberg;
vorum að tölu 50 reisandi persónur, og hver gaf 1
rd., auk skipsfólkið. Skipið var fullt með korn; var
það vor sæng. Þar voru, í þessum 50, kvennpersónur
þrjár. Vér höfðum góðan vind, allt undir Born-
holm3), það er lítið eyland í Austursjónum með
miklum útgrynningum. Á þessu landi er slæmt fólk,
álíka og á jútska skaga4), því þá þeir skulu kynda
bál á næturnar, þá færa þeir eldinn, þangað til skip-
in standa á grynningunum. 2. Aug. fengum vér
skrekkilega5 6) mikið veður, að eg vissi ekki fyr en
sjórinn rann í kringum mig, þar sem eg lá í rúm-
inu. Þetta veður mátti reiknast meir en undir Noreg,
því hver skafl gekk lukt yfir,°) engin segl urðu
færð á skipinu, og ekki varð soðið eður til matar
búið. Skipið slingraði svo mikið, að ekki varð geng-
ið upp á þilfar, því kaðlarnir á seglinu limlestu
menn, en ekki varð að neinu gert. í þessu veðri tók
ein bára vorn bát út og 2 tunnur með vatni, svo vér
höfðum þá ekki nema eina eptir, en nærri um miðj-
an dag brotnaði vort stýri í sundur, fyrir neðan
1) Svo hér.
2) = fallegasta.
3) Borgundarhólm.
4) Jótlandsskaga.
5) = óttalega.
6) þ. e. öldurnar gengu yfir allt skipið.