Blanda - 01.01.1932, Side 20
14
fundum ekki, sem okkur líkaði. Fyrir eina máltíð
i Amsterdam gaf eg i rd. og þó ei saddur. Þann
15. Aug. tók eg og minn stallbróðir okkur far í Am-
sterdam, á einni galliótu1) hollenzkri, að Lybeck, og
gengum til segls þann 17. Aug., höfðum góðan vind,
og komum að Dramune í Lybeck þann 20. Aug.
Þar vorum vér í 3 nætur, reistum svo í Hamborg
með fragtvögnum 10 mílur. í þeirri ferð sá eg leiði
Ulspegils,2) sem er einn melur, 4 milur frá Lybeck.
24. Aug. fékk eg meistara í Hamborg, sem hét Matt-
hias Friis, og var eg hjá honum hálfan mánuð;
síðan kom eg til annars, sem hét Jochum Res; hjá
honum var eg 28 vikur.
Anno 1674 reisti eg frá Hamborg og minn stall-
bróðir upp að Lyneborg.3) Þar vorum vér 3 nætur
og þaðan reistum við að Brunsvik með vögnum, og
þegar við komum í portin, kom einn lautinant móti
okkur, og spurði okkur, hvort við vildum verða sol-
dátar, en við neituðum. Síðan var eg tekinn hönd-
um og settur í fangelsi, en minn stallbróðir komst
undan. Þar sat eg í 3 daga, svo eg hafði engan
mat og ekki neitt að drekka, og þótti mér þá ekki
skemmtilegt. Þann 4. dag kom þessi lautinant inn
með einum Hamborgar-kaupmanni, sem hafði beðið,
að eg kæmist laus, og var eg þá tekinn út af fangels-
inu og látinn laus. Var eg þá mjög matlystugur.
Deginum eptir fann eg minn stallbróður, og varð
hann mér þá feginn. í þessum stað var eg 14 vik-
1) eflaust — galease, tvísiglt flutningaskip.
2) þ. e. Tiile Ugelspegel (Till Uglspil) þýzk þjóSsagna-
hetja og sagnaþulur, er átti að hafa dáið í Lauenburg 1350,
og kvað þar enn vera sýndur legsteinn hans með uglu og
spegli mörkuðu á, en talið vafasamt, að þessi herra hafi
nokkru sinni uppi verið.
3) Lúneburg í Hannóver.