Blanda - 01.01.1932, Page 33
2 7
fiskakyn neÖan úr undirdjúpinu. ÞriÖja er Arnar-
vatn, það er uppi á fjöllum. Þar veiddi sú kempa
Grettir Ásmundsson urriða sér til fæðu í langan
tíma, sem lesa má í hans sögu. Það eru ennþá fleiri
stór, fersk vötn, sem Eiðavatn og Skriðuvatn fyrir
austan, ogsvo full af fiski. í Eiðavatni hefur sést
ein gedda, sem var 6 álna löng. í kringum það vatn
eru smærri veiðivötn. Svo bar til (Anno) 1692, að
einn bóndi, sem bjó á þeim bæ Gröf í Eiðaþinghá,
veiddi urriða í þeim smávötnum umkring Eiðavatn,
og sem menn komu til þess bóndagarðs, lá hann og
allt fólkið dautt, en bland1) þeirra dauðu stóð eitt
trog með kokkaða2) urriða (sem vér köllum öfug-
ugga), af hverjum nokkuð var þó etið. [Þegar menn
komu að þessum matartrogum hjá þeim dauðu, tóku
þeir upp eitt stykki og gáfu hundi, hvar af hann
strax af upp bólgnaði og drapst, en sérhver þeirra
dauðu var uppbólginn og kviðurinn sprunginn sund-
ur rétt í kross.3) Við dyrnar lá drengur einn dauð-
ur, og hjá honum ein vatr^kanna, meinast hann hafi
lengst lifað og sótt hinum vatn að svala sér á. Þetta
er viss historía, og vita lifandi menn í Múlasýslu, að
þetta er satt.4) Því kann það ekki standast, að ekk-
ert eitthvað kunni að vera undir svo köldum himni
sem í íslandi, þó nokkrir svo meini.
1) = milli.
2) = soðna.
3) Frá [ b. v. neðst á síðu i handritinu og þar á eptir
þessari klausu: Sama skeði og nú fyrir skemmstu Anno
[vantar ártalið] á Hróaldsdal í Hegranesi og Skagafjarð-
arsýslu, að þar deyðu 4 kvennpersónur.
4) Um þennan manndauða í Gröf í Eiðaþinghá 1692 er
bæði getið í Mælifellsannál (Annálar B.m.fél. I, 576) og
Fitjaannál (sama rit II, 292—293) á svipaðan hátt sem hér
og eignað eitruðum silungi.