Blanda - 01.01.1932, Page 51
45
við þau gert. Segir svo i skoðunargerðinni1) : „Sýn-
ist þessi staður, einkum hvað kirkjunni og húsun-
um viðvíkur, í laklegasta máta umgenginn og niður-
níddur, líka nokkur partur af túnunum það sjást
kunni úrgenginn, svo aumkvunarlegt er að sjá.“ Rit-
aði þá biskup séra Narfa samdægurs (24. ágúst)
allalvarlegt aðvörunar- og áminningarbréf2), og lýsti
því, hversu aumleg staðarhús og kirkja í Möðrudal
væru, enginn skrúði eða áhöld kirkjunnar hefðu þar
fyrir hendi verið, og hefði það þó átt að sjást. Væri
þetta allt öðruvísi og aumlegar á sig komið, en hann
hefði lofað sér við síðustu samfundi, og kveðst bisk-
up ekki geta þetta hlutlaust látið embættis síns vegna,
og verði séra Narfi að ráða bót á þessu undandrátt-
arlaust, ef hann vilji gera séra nokkra von um að
halda staðnum, en annars megi hann sjálfur ábyrgj-
ast, hvernig þetta fari„ ef veruleg endurbót sé ekki
gerð fyrir næstu fardaga (1683). Síðar á þessu sama
ári (11. sept.) ritaði biskup Jóni sýslumanni bróð-
ur sínum og (14. nóv.) séra Þorsteini Jónssyni á
Eiðum um séra Narfa og niðumíðslu hans á Möðru-
dal, og bað þá að athuga, hvort hann hefðist nokk-
uð að, kvaðst vera veiktrúaður á framkvæmdir hans
í þessu, úr því að hann hafi ekkert gert næstliðin 5
ár, er verið hefðu góð og „linkindasöm".3) Varð
biskup sannspár að. þessu, því að ekki verður séð, að
séra Narfi hafi nokkra bót ráðið á þessari niður-
níðslu staðar og kirkju, enda mun honum ekki hafa
verið það kleift fátæktar vegna, og hefur hann ekki
séð sér annað vænna en að fara burtu. Ritar hann
1)
2)
3)
iÖ7a.
Visitasíubók Þórðar biskups (í Þjskjs.), bls. 457—458.
s. st. bls. 459.
Brb. Þórðar biskups 1682 (í Þjskjs.), bl. I58b—ióoa,