Blanda - 01.01.1932, Page 131
125
voru þau systkinabörn. Voru þau barnlaus. Var þá
Björn nýbúinn a<5 kaupa Laugardal af Brynjólfi
Thorlacius sýslumanni. Urn vorið (n. júní) 1740
í Laugardal gera þau hjón, Björn og Ólöf, þann arf-
leiðslugerning a'ð Ólafur sýslumaður, er s. á. kvænt-
ist Halldóru Teitsdóttur, og skilgetin liörn hans meÖ
henni, skyldu erfa helming eigna þeirra, en Sigurð-
ur launson Ólafs, hinn helminginn. Þessi arfleiðslu-
gerð var staðfest af konungi 18. nóv. s. á. (1740).
Björn stúdent og Halldóra voru 2. og 3. að frænd-
semi (frá séra Páli í Selárdal) og vegna þessa skyld-
leika hefur Björn líklega arfleitt Halldóru og börn
hennar. Virðist Ólafur sýslumaður hafa brátt fengið
í hendur af fasteign og lausafé þeirra Björns og
Ólafar sem svaraði 50 hndr. og selt eitthvað af því,
sumt á laun við þau. Þá er Ólafur var látinn, flutt-
ust þau Björn og Ólöf að Haga 1755, en Halldóra að
Stóra Laugardal, er hún fékk þá umráð yfir sem
erfð sinni. Eptir skamma dvöl í Haga fluttust þau
hjón að Innri Eyrarhúsum (Sveinseyrarhúsum) i
Tálknafirði, og þar andaðist Björn I759> líklega.
snemma um vorið. Þá var það, á meðan Ólöf var
að fylgja liki manns síns til grafar, að Halldóra fór
með skip og menn frá heimili sínu Laugardal yfir
að Sveinseyrarhúsum, heimili Ólafar,*og lét taka þar
flestallt lauslegt, er innanstokks var, þar á meðal
nokkuð af matvælum og jafnvel íverufötum Ólafar,
svo að þá er hún kom heim frá jarðarförinni þótti
henní heldur tómlegt um að litast heima fyrir, 0g þar
flestu ruplað og rænt. Við uppskript búsins litlu
síðar skilaði þó Halldóra aptur einhverju af lausafé
því, er hún hafði tekið. Frá þessu athæfi hennar
skýrir ólöf í kæru til Ólafs amtmanns Stefánssonar,
ds. á Suðureyri 22. júní 1759 (Þjskjs. A 78 I). Skýr-
ir hún þar ennfremur frá arfleiðslu þeirra hjóna, og