Blanda - 01.01.1932, Page 133
127
konungi 24. des. s. á. Skömmu sí'ðar mun Ólöf hafa
andazt, og hefur þá Halldóra líklega misst af eignum
Þeim, er Ólöf hefur haft ráð yfir, en mestur hluti
eignanna hefur áður verið kominn i hendur Sigurð-
ar Ólafssonar, er sóaði þeim út, og til Halldóru í
umboði barna hennar, og sá hluti þá að mestu eydd-
ur, svo að það er vist rétt, að Halldóra hafi dáið
orsnauð. í marz 1800 er hún húskona í Hálfdanar-
húsum, hjáleigu frá Stóra Laugardal, hjá Þórði
Lrynjólfssyni og Ástríði Oddsdóttur, fósturdóttur
smni, og þar hefur hún andazt 29. des. s. á., 82 ára
gómul, hafði gipzt Ólafi sýslumanni 22 ára (1740),
verið 14 ár í hjónabandi, átt 8 börn, en 4 dáið korn-
ung.
Mynd af Ólafi sýslumanni og Halldóru er á sætis-
hrík úr Stóra Laugardalskirkju, og er Halldóra þar
1 viðhafnarbúningi. Þessi brík er nú í Þjóðminja-
safninu.
H. Þ.
Hlunnindi á Reykhólum.
(Gömul visa).
Söl, hrognkelsi, kræklingur,
hvönn, egg, dúnn, reyr, melur,
kál, ber, lundi, kolviður,
kofa, rjúpa, selur.