Blanda - 01.01.1932, Page 137
Fyrir 65 árum
Ferðaminningar Símonar Eiríkssonar.
RitaSar af honum sjálfum árið 1921.
Höfundur þessara „minninga", Simon Eiríksson, bóndi
1 Litladal í Skagafirði, andaðist 1924, rúmlega áttræður (f.
l843), og var því kominn fast að áttræðu, er liann samdi
r'tgerð þessa (1921), svo að það er engin furða, þótt minni
hans skeikaði um sumt, eptir svo langan tíma, sérstaklega um
mannanöfn o. fl. Hef eg á stöku stað bætt við neðanmáls
stuttum skýringum og athugasemdum, en þó sjaldnar en
Þurft hefði, en þetta er þó skárra en ekki neitt. Jafnvel
þótt getið sé um margt smávægilegt í minningum þessum
°g nokkrir smiðagallar á þeim, gefa þær samt o-óða hug-
mynd um, hversu ýmsu hér á landi var háttað fyrir 60
~~7o arum, öðru vísi en nú tíðkast og ætla eg- því, að les-
endum „Blöndu" muni þykja þær allskemmtilegar aflestrar.
Eptir Símon hefur áður birzt fróðleg- ritgerð í IV. bindi
>.Blöndu“, bls. 206-220, um búnaðarháttu o. fl. um miðja 19.
°ld. Sakir þess, hve rúmið í hverju einstöku hepti „Blöndu"
er takmarkað, þolir það ekki langar ritgerðir, og hefur því
°rðið að skipta minningum þessum í tvennt, og kemur síð-
ar> hlutinn næsta ár. — 7./3. ”33. H. Þ.
Loks þykir rétt að láta hér þegar fylgja stutta greinar-
gerð frá frænda Símonar, Stefáni bónda Jónssyni á Hösk-
uldsstöðum í Blönduhlíð, fróðum manni og vel að sér, er
þann sendi útgefanda þessa rits í desember 1931. En hann
segir svo:
»Simon Eiríksson í Litladal var alkunnur fróðleiksmað-
9*