Blanda - 01.01.1932, Page 186
honum þá í glettni um, að ekki hefði virðing hans
verið meiri en svo, að eignast stelpuna hans Drauga-
Brands. Þá sagði Þórður: ,,Þakka mættir þú guði,
ef hálít vit úr Brandi hefði komizt í helvítis haus-
inn á þér.“
[Að mestu eptir hdr. séra Fr. Eggerz].
Guðmundur Vigfússon
beturnarhússráðsmaður, faðir séra Eggerts prófasts
í Reykholti og þeirra bræðra, var drykkjumaður
mikill. Einhverju sinni kom hann til Stefáns amtm-
Stephensens á Hvítárvöllum, og var þá þjónustu-
stúlka þar Guðrún Oddsdóttir, er amtmaður kvænt-
ist síðar. Slóst Guðmundur þá á tal við hana og
mælti: „Hvað heitir þú, jómfrú góð? — eða hvort
eruð þér ekki jómfrú góð?“ Sagði hún honum til
nafns síns, og að faðir sinn væri séra Oddur á Reyni-
völlum, en Kristín móðir. Guðmundur mælti: „Eruð
þér dóttir séra Odds míns, mesti glímumaður, mesti
góðgerðamaður, bezti faðir barna sinna, en mesta
andskotans naut, og eruð þér dóttir Kristínar minn-
ar, mesta ærukona, mesta sómakona, en mesta and-
skotans grybba." — Guðmundur reið eitt sinn heim-
an (frá Hjarðarholti í Stafholtstungum, þar sem hann
bjó þá) snemma morguns, áður en fólk var komið
á fætur, var það um sumar. Kom hann mjög drukk-
inn að Hvítárvöllum til amtmanns. Amtmaður spurði
hann tíðinda, en hann kvaðst engin segja, og töluð-
ust þeir alllengi við. En er hann hafði lengi dvalið,
mælti hann við sjálfan sig: „Og hvað skal þá smiðju