Blanda - 01.01.1932, Page 216
210
innar eÖa ekki, en annars er lítt kunnugt um, hvern-
ig þessi 3 manna nefncl hefur hagað úrvali sínu.1)
Þó er kunnugt um þinghöld Níels Kier lögmanns
og sýslumanns í Kjósarsýslu (23. ágúst 1730 á Mos-
felli og 24. s. m. i Brautarholti og Saurbæ á Kjal-
arnesi) og lýstu þar þeir, sem skráÖ höföu sig til
ferðarinnar sumarið áður, að einni stúlku undan-
skildri, að þeir hefðu gert það í hugsunarleysi og
báðu þess „í guðs nafni með grátandi tárum“, að
þeir mættu lifa og deyja i hinu fátæka föðurlandi
sinu, en mótmæltu algerlega að fara til Grænands,
og sama hefur orðið ofan á annarsstaðar, að menn
hafa orðið allshugar fegnir að verða lausir við þetta
flan og mega sitja kyrrir heima. Var svo langt frá
því, að 12 fjölskyldur fengjust til að standa við
loforð sín frá fyrra ári, að það voru ekki nema
að eins 14 manns, sem nú vildu góðfúslega gefa sig
til fararinnar af þeim c. 200 manns, er árið áður
höfðu lofað utanför, og þessir 14 voru: Einn bóndi
með konu og barni úr Hnappadalssýslu, ein ó-
gipt stúlka úr Kjósarsýslu, 4 bændur úr Rang-
árvallasýslu, þar á meðal 1 kon'a, 3 börn og vinnu-
kona, og loks ókvæntur maöur úr Árnessýslu.2)
En einnig þessar örlitlu „tryggu leifar“ frá sumr-
1) Séra Jón Halldórsson segir (Hitardalsannál 173° •
Annálar bókm.fél. II, 636) að ný þing og samkomur hafi
verið haldin um, sumari'Ö í fyrgreindum héruðum og þá vel
flestir gengið úr tanganum (þ. e. gengið úr skaptinu) er
fúsir voru fyrra árið.
2) Frá þessu skýrir Ocksen stiptamtmaður í bréfi til
konungs (Kristjáns 6.) 31. jan. 1731, þar sem hann sendir
honum öll plöggin um þetta frá Islandi, af því að hann seg-
ist ekki hafa getað afhent þau grænlenzku nefndinni, þvl
að hún sé öll tvistruð. (Brb. stiptamtm. 1731, bls. 176—178 1
Þjskjs.).