Blanda - 01.01.1932, Page 240
234
hans1). Hann var fæddur á Borg á Mýrum io.
maí 1734, sonur Þórhalla prests Magnússonar og
s. k. hans Bóthildar Finnsdóttur, útskrifaöur úr
Skálholtsskóla 1753, sigldi til náms viö háskólann
Í759- °S tók embættispróf í guðfræöi 1761. Vor-
ið 1765 var hann sendur til Grænlands sem prestur
og trúboöi í Godthaab og jafnframt ráðinn af
verzlunarfélaginu til 2 ára til aö rannsaka land-
iö með það fyrir augum, að íslendingar kynnu ef
til vill aö vilja setjast þar aö. Fékk hann haröa
útivist, hörkur og kulda, kom til Godthaab 30.
júlí eptir 11 vikna útivist, og tók þegar að ferö-
ast um landið. Segir hann í bréfi 29. ágúst (til
P. Kofod Ancher prófessors,2) aö hann telji land-
ið hentugt til kvikfjárræktar og til búsetu fyrir
norskar og íslenzkar fjölskyldur, og þar séu auk
þess mörg önnur þægindi fyrir nýbýlisfólk. Um
sama leyti, eða 28. ágúst 1765 í Godthaab, ritaði
hann hálfbróöur sínum (samfeðra) séra Magnúsi
Þórhallasyni í Villingaholti allmerkt bréf3). Minn-
ist þar sérstaklega á landgæöi i Grænlandi, einkum
í Amaralikfirði, þar sé hið bezta tööugresi og út-
hey, miklir birki- og víöiskógar, hreindýr, hérar,
endur og rjúpur, - mesti aragrúi, - lax og silungur í
1) Aðalheimildir um dvöl hans i Grænlandi eru í Kaup-
mannahöfn, og hefur allmargt af því verið prentaS. MeSal
annars hefur dr. L. Bobé, nafnkunnur sagnfræðingur með
Dönum, ritað um hann merka ritgerð, og hefur hann munn-
lega skýrt mér frá, aS hann teldi Egil langfremstan þeirra
manna, er Danir l'.efðu sent til Grænlands til athugana og
rannsókna, og rit hans um laudiS og starfsemi hans öU
þar stórlega mikilsverð. í Guðfræðingatali mínu bls. 57—
58 er stutt æfiágrip Egils, og vísast til þess hér.
2) J.S. 98 fol. í Lbs.
3) Er í Lbs. 852 4to III. 56—58.