Blanda - 01.01.1932, Page 283
2 77
bættisgerð hjá Páli presti. Próf. hafði heyrt ávæn-
>ng af þessu, og þegar prestur gekk út, rétt áður en
hann skyldi í stól stiga, þá fylgdi prófastur þegar
á hæla honum og fékk prestur ekkert ráðrúm til
3.8 gæöa sér úr glasinu. Hann sté svo í stólinn og
byrjaði prédikun, en í öndverðri ræðunni segirhann:
.Jesús sagði viðlærisveinana:„Innanskammsmunuð
þér ekki sjá mig,“ og í sama bili lét hann sig hverfa
niður í ,,pontuna“ og saup vel á glasinu, sem hann
haföi áður tekið úr vasanum; spratt síðan upp og
hélt áfram: „en innan skamms munuð þér sjá mig
aptur.“ — Ekki er þess getið, að prófastur gæfi sig
neitt að þessu.
Barnauppfræðing séra Páls þótti fremur léleg og
nokkuð með einkennilegu móti. Hann gekk mjög
ríkt eptir því, að börn kæmu til spurninga á „kirkju-
gólf“ á hverjum messudegi frá nýári og fram á
sumar, og að söfnuðurinn hlýddi á barnayfirheyrsl-
una, en opt voru spurningar hans fremur hjákát-
legar. Kona, sem gekk til spurninga hjá séra Páli,
þegar hún var barn (9 ára) og sem enn er á lífi
sagði mér svo frá: Það var á fyrsta sunnudag í jan-
úar, að hann spurði hana: Geturðu sagt mér rýjan
min, úr hverju hann dó hann Heródes? Henni varð
ógreitt um svarið. Þá segir prestur: „Það er varla
von, að þú vitir það, en eg get sagt þér það: Hann
drap sig á kálfskjötsáti.“
Ekki lagði séra Páll af gáska sinn og meinlega
hrekki, þóft aldur færðist yfir hann. Móðir mín, sem
þá var ung kona og nýgipt, í Haganesi í Fljótum,
sagði mér þessa sögu: Það var haust eitt, að hald-
in var þar hreppssamkoma. Þar var séra Páll og
einnig séra Jón Norðmann prestur á Barði, báðir