Blanda - 01.01.1932, Page 293
287
inn. Eg man eptir, aö fleiri þóttust veröa varir viö
einhvern reyk eptir „Bíld“, bæöi á Yztahóli og
næstu bæjum, en ekki bar á því hjá okkur á Heiöi,
eptir aö þetta dót karlsins haföi veriö flutt burt og
selt á uppboöinu.
[Skrifað haustið 1932, eptir eigin minni og Ástu systur
minnar].
Jón Jóhannesson.
Frá Hallgrími lækni.
Bg var að lesa IV. b. 4. h. af Blöndu: Æfisöguþátt Hall-
gríms læknis Jónssonar, eptir Margeir Jónsson á ögmund-
arstöðum. Við það sem þar er sagt get eg bætt þessu:
Faðir minn, Jóhannes Finnbogason bóndi á Heiði í Sléttu-
hlíð, (d. 1898), mundi Hallgrim vel. Hann sagði mér, að
þegar Hallgrímur bjó á Vestarahóli í Flókadal, hefði það
hent eitt sinn, að orðrómur hefði lagzt á um það, að Hallgr.
hefði hitt stúlku á förnum vegi við Móssjóinn, og þau átt
vinsamleg viðskipti 1 sauðahúsinu (beitarhúsi) frá Yzta-
mói. Sagan barst út, eins og gengur, enda lék orð á áður
um það, að Haligr. væri kvennhollur í meira lagi, eins og
um hitt, hve vel hann var gefinn, skáld og læknir. Þá bjó
1 Hrúthúsum í Fljótum Guðmundur skáld. Hann hefir ort
rimur af Þjalar Jóni, Vilhjálmi sjóð, og margt kveðlinga,
sem flest mun nú glatað. Guðmundur mun hafa verið hvefs-
inn og orkti hann um þetta brag og er þessi vísa þar í:
Sauðkindanna svefnstofur
sels hjá ranni hreinum
eru svanna ábreiður
undir mannabeinum.
Fleiri voru vísurnar og nam eg þær nokkrar af föður
mínum, en hefi gleymt.
Haligr. svaraði með visum, er byrja svona: