Blanda - 01.01.1932, Page 356
350
eöa ríkra manna til óvi.ia sinna í ránshug eöa víga-
hug tíökuöust á 15. öld, alveg eins og á 13. öld.
(Miklabæjarrán, Krossreið, Oddgeirshólareiö o. s..
frv.). Ef lögum varð yfir vegendur komið, sem.
oftast mun þó hafa oröið aö lokum, sluppu þeir
með greiðslu manngjalda, sem venjulega virðast
hafa verið 20 hundruð, og greiðslu þegngildis til
konungs. Ránsmenn voru að vísu óbótamenn, en
venjulega munu þeir hafa friðþægt fyrir sig með
fégjaldi. Drykkjuskapur höfðingja hefur verið all-
mikill og óhóf i nautnum á fleiri vegu, og voru
meiri háttar klerkar engin fyrirmynd í þeim efnum.
„Alþýðumenntun" var þá óþekkt fyrirbrigði. Lest-
ur og skrift kunnu aðeins þjónar kirkjunnar og
fáeinir menn aðrir, eflaust aðallega ríkismenn, er
tilsagnar klerka eða ldausturmanna höfðu notið.
Kirkjuvaldið hvíldi eins og farg á fólkinu, en þö
áttu sjálfsagt fátækir menn og umkomulausir stund-
um athvarf hjá henni fyrir ágangi ríkismanna.
Víkur nú aftur að Bjarna í Hvassafelli og mál-
um hans. Kemur hann nú næst við sögu 1480. Hafði
átt dóttur eina, sem Randíður hét, og mun nafnið
vera afbökun úr Ragnfríður. Bogi Benediktsson
segir (Smæf. I. 172), að Bjarni hafi átt Randíði
áður en hann kvæntist, og ætti Randíður þá að hafa
verið að minnsta kosti tvítug, þegar Ólafur biskup
tekur upp málin á hendur Bjarna. En þá virðist
Randíður ekki hafa verið nema 15—16 vetra. Hún
er 13—15 vetra, er Bjarni átti að hafa fallið með
henni, og hefur varla liðið langur timi frá því og
þangað til biskup fangaði Bjarna. Sögn Boga um
það, að Bjarni hafi átt Randíði áður en hann kvænt-
ist, byggist á því, að hann telur kvonfang Bjarna
10 árum síðar en rétt er. Hlýtur Bjarni því að hafa
átt Randiði eftir að hann kvæntist. Randíður hlýt-