Blanda - 01.01.1932, Page 364
358
brast hvorki matur né drykkur né þjónusta, sem
hann sag'ði sjálfur, að allir sér hefði gott gjört.
Sagðist hann aldrei harðara fangelsi hafa haft held-
ur en fjöturlás rúman til skipta á sínum fótum, en
oft þess í rnilli laus gengið. Sáu þeir dandimenn,
sem ei vissu áður, að Bjarni Olason var bæði feitur
og vel fær og að öllu vel haldinn.“
Barni var í gæzluvarðhaldinu yfir háveturinn.
Ekki er að vísu kunnugt um veðuráttu veturinn
1480—1481. Hún hefur sennilega verið í meðallagi,
fyrst engar skýrslur eru um hana i heimildarritum.
Má gera ráð fyrir því, að dimmt og að minnsta
kosti heldur kalt hafi verið í fangeLinu. Miklu ljósi
hefur varla verið eytt á fangahn og um upphitun
á klefanum hefur ekki verið að tefla. í öðrum
löndum voru fangar látnir liggja á gólfinu, oft
alveg beru, en hvort svo hefur verið á Iiólum, skal
ósagt látið. Prestarnir hafa það eftir Bjarna, að
hann hafi haft nóg ,,klæði“. Það getur bæði átt við
ígangsklæði og klæði í flet hans. Hann er líka lár-
inn segja, að hann hafi haft nóga „þjónustu“. Með
þessu er líklega átt við það, að klefinn hafi verið
ræstur eftir þörfum og ef til vill, að hann hafi
fengið að hafa nærfataskipti. En annars er þetta
atriði ekki ljóst. A jólaföstunni hefur hann verið
hálfsveltur. Annan daginn fastar hann, en hinn fær
hann að eins fisk. Og þenna kost lætur biskup
hann hafa „fyrir sín brot“. Loks er hann látinn hafa
„fjöturlás“ á fæti til skipta. Fjöturinn er kallaður
„rúmur“, og hefur því ekki átt að særa fótinn eða
meiða, enda var hann hafður á fótunum til skipta.
Fjöturinn hefur sjálfsagt verið festur um stoð eða
staf í klefanum til þess að tryggja það, að fanginn
kæmist ekki burt. í allri þessari meðferð, sem sjáli-
sagt hefur hvorki verið verri né betri en almennt