Blanda - 01.01.1932, Page 402
Árstillag félagsmanna er 8 kr. Æfitillag í eitt skipti fyrir
öll 100 krónur. Æfifélagar f'á allar bækur fólagsins, sem það
geíur út upp frá þeim degi, er þeir gerast æfif'élagar, en f'á
að öðru leyti engin hlunnindi frekar en hver utaní'élagsmáð-
ur i kaupum á eldri bókum félagains.
Ársbækur félagsins þetta ár (1932) eru þessar:
1. Alþingisbœkur íslands V. b. 8. h. 4,00.
‘2. Blanda, V. b. 1. h. 3,50,
3. Landsyfirréttar- og hœstaréttardómar (1801—1873) IV.
b. 1. h. 3.50.
4. Þjóðsögur Jóns Árnasonar, II. bindi, 3. hepti 5,00
(nákvæm endurprentun eptir frumútgáf'unni). Ennfremur fá
félagsmenn aukreitis Skýrslu félagsins árið 1932. Skil-
vísir félagsmenn fá því i ár bækur fyrir 16 kr. gegn að eins
8 kr. árgjaldi, og eru það l'ágáet. kóstakjör.
Menn eru beðnir að athuga, að Þjóðsögurnar fást alls
ekki i lausasölu, og verða menn því að gerast félagsmenn
til að eignast þessa stórmerku bók.
Þess skal getið, að af sérstökum ástæðum var ekki unt
að gefa út á þessu ár f'rambaldskefti (3. hefti) af Búalögum,
eins og ráðgert var i fyrra, en það kemur áreiðanlega út
næsta ár og verður þá sem aukageta handa félagsmönnum.
Það borgar sig því vel að ganga í Sögufélagið nú þegar.
Forseti félagsins er Hannes Þorsteinsson þjóðskjalavörður,
og eiga nýir félagar að gefa sig fram við hann eða af-
greiðslumann fólagsins.
Gjaldkeri er Einar Arnórsson prófessor.
Áfgreiðslu bóka félagsins hefur Helgi Árnason safnahúss
vörður á hendi, og eiga félagsmenn að greiða tillög sín beint
til hans. Hjá honum geta menn pantað allar bcékur félagsins
og fengið þœr sendar gegn póstkr'ófu að viðbœttu burðargjaldi.
Gerið svo vel að sýna skýrslu þessa kunningjum yð-
ar, sem ekki eru enn komnir i Sögufélagið. Þeir, sem
ætla sér að ganga í félagið, gefa einnig fengið hana
ókeypi8 hjá afgeiðslumanni þess í Safnahúsinu.