Eimreiðin - 01.04.1937, Blaðsíða 49
eimreiðin
ÞAÐ, SEM HREIF
169
— Já, það er satt, sagði ég loksins, eins og ég væri að
átta mig eftir langa villu, ég ætlaði að skreppa bæjarleið og
fór þess vegna svona snemma á l'ætur. Eg ætla út að Stóru-
Grund með bréf í póstinn.
Þctta var lygi, en ég fór samt.
Eins og fyr segir, skeði þetta í hittiðfyrra. En enginn
skyldi samt lialda, að við hefðum þar með skilið að skiftum
^efilangt. Nei, öðru nær.
Unnustan mín á Suðurlandi hvarf mér gersamlega í
gleymskunnar djúp, eins og sól í hafið, um leið og ég fékk
löðrunginn — því miður.
Eftir það var ég friðlaus maður og sá ekkert annað en
Rebekku, unz mér lánaðist eftir árlangt eríiði og ástundun að
vinna hana til eiginorðs. En af þeirri baráttu segir ekki hér.
Það er önnur saga.
Um Gyðinga.
Gyðingar cru nú alls lfi.261.000 talsins i heiminum, par af 344.000 á
Stóra-Bretlandi og írlandi, samkvæmt skýrslu sem þýzki þjóðhagsfræðing-
orinn Erwin Ravitch liefur gert.
Seni stendur eru sex sinnum fleiri Gyðingar i heiminum heldur en voru
J iionum fyrir 135 árum, svo ekki virðast Gyðinga-ofsóknirnar, sem svo
miltið er af iátið og allmikið kveður að, fá miklu áorkað um að útrýma
beim.
I lok júnímánaðar árið 193B var
keimsálfa sem liér segir:
í Evrópu................
- Afrílui..............
- Ameriku..............
- Asíu.................
- Ástralíu.............
tala Gyðinga í hverri Iiinna fimm
............ 9.736.000
.............. 560.000
............ 5.031.000
.............. 936.000
............ 28.000
Samtals 16.291.000