Tímarit lögfræðinga - 01.10.1984, Qupperneq 28
olíu- og gasvinnsla á hafsbotni, svo sem í Norðursjó og víða um heim,
á ný og fullkomnari ákvæði um verndun hafsins gegn mengun.
VIII. HIÐ ALÞJÓÐLEGA HAFSBOTNSSVÆÐI.
Kveikjan að endurskoðun hafréttarins var, eins og áður sagði, tillögur
um að hafsbotnssvæðin utan lögsögu ríkja yrðu lýst sameiginleg arf-
leifð alls mannkyns. Þær tillögur náðu fram að ganga, sbr. XI. hluta
sáttmálans, og hafa í för með sér gerbreytingu á réttarstöðu hafs-
botnsins. Þessi ákvæði, ásamt ákvæðunum um efnahagslögsöguna og
landgrunnið, eru tvímælalaust mikilvægustu nýmæli þess nýja hafrétt-
ar sem í sáttmálanum er að finna.
Áður hafði verið litið á réttarstöðu hafsbotnsins utan landgrunns
ríkja sem res communis á sama hátt og úthafið1). Nú er þetta svæði
og auðlindir þess lýst sameiginleg arfleifð mannkyns (136. gr.) og sett
undir alþjóðlega stjórn.
Mörk svæðis þessa eru við 200 mílna efnahagslögsöguna eða ytri mörk
landgrunns ríkja, ef þau mörk liggja utar, skv. nánari ákvörðun VI.
kafla sáttmálans um landgrunnið. Þegar rætt er um auðlindir hins al-
þjóðlega svæðis er einkum átt við þær málm-, og olíu- og gasauðlindir
sem á eða í hafsbotninum eru. Lifandi auðlindir, fiskur og sjávardýr
sem þar finnast, tilheyra því auðlindum úthafsins. Er öllurn ríkjum
því frjálst að nýta þær í samræmi við ákvæði VII. kafla sáttmálans um
úthafið. Réttarstaða hafsins yfir hinu alþjóðlega svæði, og loftrýmis-
ins, verður því óbreytt. Þar sem hámarksvinnsla á hafsbotni getur aug-
ljóslega haft ýmis skaðleg áhrif á lífið í sjónum er að finna ýmis
ákvæði í hafsbotnskaflanum um vernd hafsins og auðlinda þess gegn
mengun og öðrum slíkum áhrifum (145. gr.).
Sett er á laggirnar alþjóðastjórn yfir hafsbotnssvæðunum, Hafs-
botnsstofnun, sem verður ný stofnun í tengslum við Sameinuðu þjóð-
irnar. Þar til sáttmálinn tekur gildi og stofnunin hefur störf starfar
sérstök undirbúningsnefnd sem sett var á laggirnar með ályktun Haf-
réttarráðstefnunnar og öll ríki geta átt aðild að.
Innan Hafsbotnsstofnunarinnar munu starfa eftirfarandi ráð og und-
irstof nanir:
(1) Þingið. Þar eiga öll aðildarríki fulltrúa og er hlutverk þess stefnu-
mörkun í hafsbotnsmálum.
1) C. J. Colombos, International Law of the Sea. Fourth Edition 1959, bls. 61.
82