Tímarit lögfræðinga - 01.10.1984, Síða 56
Frá
LögfræMngafélagi
íslands
NÁMSKEIÐ OG MÁLÞING
LÖGFRÆÐINGAFÉLAGS ÍSLANDS
Lögfræðingafélag íslands var stofnað 1958. Árið 1971 hófst nýr þáttur í
fræðastarfi þess, en í mars það ár var haldið fyrsta „endurmenntunarnám-
skeið“ félagsins. Námskeið eða málþing hafa síðan verið árlegur viðburður
í félagsstarfinu. Jafnframt námskeiðum og málþingum hefur félagið haldið
fræðafundi af síst minni þrótti en áður.
Námskeiða og málþinga hefur verið getið í Tímáriti lögfræðinga, sumra
sérstaklega, en annarra aðeins í frásögnum af aðalfundum. Ekkert sam-
fellt yfirlit hefur verið til um þessa starfsemi og þess vegna er nú birt eftir-
farandi skrá. í skránni er auk dagsetningar getið um fundarefni og fundar-
stað. Nafna framsögumanna, heita framsöguerinda og fjölda þátttakenda er
ekki getið, en upplýsingar um það er yfirleitt að finna f Tímariti lögfræðinga,
sbr. tilvfsanir í sviga. Fyrirlestrar hafa aldrei verið fleiri en á fyrsta nám-
skeiðinu (1971). Þá höfðu alls 12 menn framsögu. Þótt allftarlegar fréttir hafi
birst um sum námskeið og málþing, er þar yfirleitt ekki sagt sérstaklega frá
umræðum, sem urðu á eftir framsöguerindum. Hins vegar hafa mörg fram-
söguerindanna verið birt í Tímariti lögfræðinga, sum þeirra aukin og endur-
bætt.
1971 22.-26. mars
1972 20.—24. nóv.
1973 24.-29. nóv.
1974 16,—18. maí
1975 3. maí
1976 2. okt.
1977 8. okt.
1978 30. sept.
1979 13. okt.
Fasteignir. Háskóli íslands, Árnagarður. Haldið ásamt
lagadeild Háskóla íslands. (Tr. 1972, 27.)
Skattaréttur. Háskóli islands, Lögberg. Haldið í sam-
vinnu við Lögmannafélag íslands og lagadeild. (Tr.
1973, 1. hefti, 29—30.)
Stjórnun. Háskóli íslands, Lögberg. Undirbúið í sam-
ráði við Stjórnunarfélag islands. (Tr. 1973, 4 hefti, 24.)
Vinnuréttur. Háskóli íslands, Lögberg 16. og 17. maí og
Valhöll, Þingvöllum 18. maí. (Tr. 1974, 50 og 130.)
Félagaréttur. Flúðir, Hrunamannahreppi. (Tr. 1975, 185.)
Sjóréttur. Grindavík. (Tr. 1976, 124—125.)
Skaðabótaréttur. Skfðaskálinn í Hveradölum. (Tr. 1977,
196—197.)
Vinnulöggjöf — verkföll. Fólkvangur, Kjalarnesi. (Tr.
1978, 161—167.)
Stjórnarfarsréttur. Borg, Grímsnesi. (Tr. 1979, 226.)
110