Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1985, Page 11

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1985, Page 11
arskránni, heldur einungis í almennum lögum, einkum lögum um með- ferð opinberra mála. ísland er enn fremur þjóðréttarlega bundið af al- þjóðasamningum, sem skylda aðildarþjóðir til að tryggja þessi mann- réttindi (lágmarksréttindi) í landslögum sínum, sbr. 3. tl. b. og c. 6. gr. Evrópuráðssamnings um verndun mannréttinda og mannfrelsis, sbr. augl. 11/1954, og 3. tl. (b) og (d) 14. gr. alþjóðasamnings (S.Þ.) um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, sbr. augl. 10/1979. 1 ákvæðum þessum er lögð áhersla á frjálst val málsvara og endurgjaldslausa lög- fræðiaðstoð, ef sökunautur hefur ekki efni á að greiða fyrir hana og réttarhagsmunir krefjast þess. 1 umræddum mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna eru ítarlegri fyrirmæli en í Evrópuráðssamningn- um, m.a. um leiðbeiningarskyldu varðandi rétt til lögfræðilegrar að- stoðar og að sakborningi sé séð fyrir slíkri aðstoð í öllum þeim tilvikum, er réttarhagsmunir krefjast þess, og án greiðslu af hans hálfu í öllum slíkum tilvikum, hafi hann ekki næg efni til þess að greiða fyrir að- stoðina. Hér á eftir verður fyrst og fremst rætt um beinar (aktívar) varn- arheimildir verj anda, réttargæslumanns eða ráðins talsmanns, þ.e. hvað gera megi sakborningi til varnar og á hvern hátt (varnartaktík), en ekki um það álitaefni almennt, hver séu takmörk fyrir aðgerðum ríkis- valdsins gagnvart sakborningi, t.d. við handtöku eða gæsluvarðhald. Hugtakið verjandi verður í framhaldinu notað um allt þrennt: verj- anda, réttargæslumann og ráðinn talsmann skv. 3. mgr. 81. gr. oml., nema sérstök þörf sé á aðgreiningu. Hugtakið verjandi í þrengri merk- ingu er yfirleitt notað, þegar sakborningi er skipaður talsmaður eftir málshöfðun, en hugtakið réttargæslumaður um skipaðan talsmann við rannsókn máls fyrir málshöfðun, sbr. athugasemdir Einars Arnórs- sonar við 80. gr. oml.3) Þessi hugtakanotkun er þó ekki einhlít í oml., sbr. 1. tl. 2. mgr. 80. gr. oml. (verjandi manns, er sætir gæsluvarðhaldi) og 3. mgr. 80. gr. (réttargæslumaður við dómsathafnir undir sérstök- um kringumstæðum, jafnt fyrir sem eftir málshöfðun). Samkvæmt 83. gr. oml., sem raunar er miðuð við eldra réttarástand (fyrir 1976), skal dómari sá, sem fer með málið, skipa verjanda í því, þégar það er heimilt eða skylt eftir ákvæðum laganna, Hér virðist hugtakið verjandi notað í rýmri merkingu. Athugasemd Einars Arnórssonar við greinina má e.t.v. skilja svo, að einungis sé átt við verjanda manns, er sætir gæsluvarðhaldi við rannsókn máls. Ekki er þó ástæða til svo þröngrar túlkunar. Athyglisvert er, að í síðari málslið ákvæðisins er rætt um 3) Sjá einnig Jón A. Ólafsson 1979, 83. 217

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.