Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1985, Síða 69

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1985, Síða 69
er lagt bann við þvf að senda fólk til landa þar sem það á á hættu að verða pyntað. Samkvæmt sáttmálanum geta skipanir yfirmanns ekki réttlætt gerðir þess sem pyntar. Sett skal á fót 10 manna nefnd sem á að rannsaka kærur um skipulagðar pyntingar í aöildarlöndum sáttmálans. Og enn hefur þessum málum miðað fram á veg. í mars 1985 samþykkti Mannréttindanefnd S.Þ. að stofna stöðu sérstaks rannsóknaraðila sem leggja skal fram skýrslur um pyntingar og skal starfssvið hans ná til allra aðildarrikja Sameinuðu þjóðanna. Honum á að vera kleift að rannsaka allar skýrslur um meintar pyntingar og grípa inn í mál sem ekki þola bið. Þessi tilhögun stór- eykur möguleika Sameinuðu þjóðanna til að takast á við pyntingar. Fleira mætti upp telja af vettvangi Sameinuðu þjóðanna sem og af öðrum vettvangi, en hér verður látið staðar numið. Er þeirri ósk hér komið á framfæri að ísland láti ekki sitt eftir liggja í þessari baráttu. í upphafi þessa yfirlits nefndi ég að lögfræðingar hefðu gjarnan komið við sögu Amnesty. Það er því rétt að Ijúka þessu með þvi að minnast á „atvinnu- mannahópana“ svokölluðu innan Amnesty. En svo eru kallaðir hópar fólks úr sömu atvinnustétt sem starfa að Amnesty-málum, en þó innan sins sér- sviðs; má nefna t.d. læknahópa, lögfræðingahópa, kennarahópa, blaða- mannahópa, þingmannahópa. Lögfræðingahópar taka þátt í skrifum vegna einstaklinga og í almennum herferðum þar sem sérgrein þeirra, lögfræðin, kemur að sérstaklega góðum notum. Framlag þeirra getur haft mikla þýðingu þegar Amnesty ræðir við ríkisstjórnir mál sem eru réttarfars- eða löggjafar- eðlis. Sama á við þegar fjallað er um mál samviskufanga sem ekki hafa feng- ið réttláta málsmeðferð eða hafa sætt pyntingum og við rannsókn mála, með tilliti til þess hvort málin falli innan verksviðs samtakanna og samrýmist lög- um þeirra. Lögfræðingahópar eru einnig landsdeildum til ráðuneytis um ýmis lögfræðileg málefni og veita hjálp við að vekja athygli lögfræðingastéttar lands síns á mannréttindabrotum um víða veröld. Næsti alþjóðafundur lög- fræðingahópa verður haldinn í London í maí 1986. Það er leitt að þrátt fyrir hið mikla frumkvæði sem íslenskir lögfræðingar hafa sýnt í starfi Amnesty skuli ekki enn vera til lögfræðingahópur á íslandi sem sent geti fulltrúa á þetta þing, sem án efa verður mjög áhugavert. Hjördís Hákonardóttir NÝ STJÓRNSÝSLULÖGGJÖF í DANMÖRKU í Danmörku hafa verið sett almenn stjórnsýslulög nr. 571 19. desember 1985 (Forvaltningslov) svo og lög um aðgang að upplýsingum hjá stjórn- sýslunni nr. 572 19. desember 1985 (Lov om offentlighed i forvaltningen) og taka hvor tveggja lögin gildi 1. janúar 1987. Hefur þá verið sett almenn stjórnsýslulöggjöf í einhverri mynd á öllum Norðurlöndunum nema hér á landi en stjórnskipuð nefnd mun þó vera komin vel á veg að semja frumvarp til íslenskra stjórnsýslulaga. Dönsku stjórnsýslulögin eru 37 greinar í 9 köflum. Fyrsti kaflinn fjallar um almennt gildssvið laganna, annar um vanhæfi stjórnvalda, þriðji um leið- beiningaskyldu stjórnvalda, málsvara aðila o.fl., fjórði um upplýsingarétt 275

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.