Morgunn - 01.06.1970, Page 21
Sveinn Víkingur:
Nýstárleg rannsókn á miðlinum
Astrid Gilmark
☆
I 47. fírgang Morguns skrifaði ég eða öllu heldur þýddi
grein um sænska miðilinn Aslrid Gilmark. Þessi kona hefur
skyggnigáfu á háu stigi. Hún hefur einnig miðilsgáfu og
hefur fundi, þar sem hún missir meðvitund og sofnar. Þetta
er menntuð kona á bezta aldri og er búsett i Uppsölum, þar
sem maður hennar gegnir ábyrgðarmiklu opinheru starfi.
Nýlega hefur sænsk kona lagt fram allmikið fé til vísinda-
legra rannsókna á miðilsgáfum og sálrænum fyrirbærum. Mun
háskólinn i Uppsölum hafa umráð þessa fjár. Þetta hefur
orðið til þess, að fjórir vísindamenn og tæknifræðingar hafa
tekið sér fyrir hendur að beita allri nýjustu tækni i rafeinda-
fræði til þess að reyna að ganga úr skugga um það, hvort
unnt muni vera að finna og jafnvel mæla einhver áhrif eða
segulsveiflur, sem beinist að miðlinum á meðan hann er i
sambandsástandi, en hverfi þegar hann vaknar.
Frú Astrid Gilmark var meira en fús til þess að aðstoða við
þessar tilraunir og láta hina vísu menn með sín næmu tæki
rannsaka sig á meðan hún væri i miðilsástandi og einnig eftir
að hún væri vöknuð. Enda þótt hún sé sjálf bæði af eigin
reynslu og annarra sannfærð um framhaldslíf eftir líkams-
dauðann, kveðst hún fagna því, að þessar tilraunir séu gerðar.
Takist með vísindalegri nákvæmni og tilhjálp hinna hárná-
kvæmu tækja að sanna, að áður óþekktar bylgjur séu sam-
fara miðilsástandinu, þá muni felast i því nýjar og harla