Morgunn - 01.06.1970, Side 30
24
MORGUNN
þessu. Sálfræðingurinn sjálfur lítur svo á, að hér hafi verið
um PK fyrirbíBri að ræða, sem hafi á einhvern hátt staðið
í sambandi við miðilinn, enda þótt hann geli ekki skýrt með
hvaða hætli það hafi orðið.
Rétt er einnig í þessu sambandi að minnast stuttlega ó
reimleika, sem gera vart við sig ó heimilum og eru engan
veginn sjaldga'fir. Segja má, að það úi og grúi af frásögnum,
fornum og nýjum, um óskýranleg fyrirbæri, sem eigi sér stað
á heimilum manna. Visindamaður, sem kynnir sér vandlega
þessar frásagnir, er í standandi vandræðum. Hann getur hvorki
trúað þeim né heldur hafnað þeim með öllu. Þessi fyrirba'ri
eru með ýmsum hætti. Menn finna að tekið er á þeim með
ósýnilegum höndum, heyra margs konar hávaða, sjá hurðir
opnast sjálfkrafa o. s. frv. Stundum sjá menn svipi eða verur,
og það sjá oft börn engu siður en fullorðnir og jafnvel húsdýr,
eins og stundum virðist mega fyllilega greina af viðbrögðum
þeirra.
Stundum er þessi ókyrrleiki bundinn við ókveðinn mann,
oft ungling á gelgjuskeiði eða barn. Diskar og annað leirtau
er brotið, barið er að dyrum, steinum varpað inn um dyr eða
glugga, húsgögn og munir hreyfðir úr stað inni í læstum
herbergjum. Menn fá ekki svefnfrið vegna þess að dregin eru
ofan af þeim sængurfötin og engu líkara en illir andar hafi
tekið við allri stjórn um tíma á heimilinu. Sum þessara fyrir-
bæra hafa verið rannsökuð af vísindamönnum eða öðrum, sem
haft hafa vit og þekkingu á þessum málum. En þrátt fyrir
J>að og þegar öll kur! koma til grafar, hikar varfærinn rann-
sóknarmaður við að segja nokkuð um þetta af eða á. Oft leikur
nokkur grunur á um svik, eða sá möguleiki verður ekki fylli-
lega útilokaður. Menn eru ó báðum áttum hverju trúa skal,
en vona að fá tækifæri sjálfir til að rannsaka slík fvrirbæri.
Merkilegar sögur eru sagðar um ýmsar frumstæðar þjóðir.
Þegar raút er við mannfræðing, sem nýkominn er úr rann-
sóknarleiðangri á siðum og háttum Indiána í Ameríku, Aust-
urlandaþjóða, íbúa Suðurhafseyja eða svertingja suður í Af-
riku, þá kanrt hann að segja frá mörgum dularfullum fyrir-