Morgunn - 01.06.1970, Page 77
M O R G U N N
71
hyggðum kjallara á Þórshöfn. Morgun einn, er þeir vitjuðu
um hvolpana, voru allir sloppnir út nema einn. Tókst þeim
að finna þrjá, en þann fjórða vantaði. Höfðu þeir ekki orð á
þessu við neinn, því það varðaði við lög að missa tófur úr haldi.
Drauma-Jói var ó engjum þennan dag allan. En um kvöldið
lóru þeir heim til hans, sögðu sínar farir ekki sléttar og báðu
hann að láta sig dreyma um hvolpinn um nótlina. Jói kvaðst
tttundu reyna það, en líklega yrði það ekki til neins, því gáfa
sm væri að mestu töpuð.
Um morguninn hittu þeir Jóa að móli. Sagði hann að sig
hefði dreymt hvolpinn og hefði sér sýnzt hann vera undir
hauðask li rsgru nninurn, en það var gamall og hrörlegur hús-
grunnur um það bil 100 metra frá kjallaranum, þar sem
hvolparnir voru geymdir. Sagði hann, að sér virtist hvolpur-
lrm hafa gráa bringu og vera ofurlítið skakkur að aftan og
eiga örðugt með að ganga. Var lýsingin nákvæmlega rétt.
Uöfðu þeir misst hvolpinn út óður og þá fellt hann með steini,
°g lamaðist við það annað lærið.
heir gengu síðan rakleitt niður að Rauðaskúr. Var þá hvolp-
arinn að halda þaðan ofan mölina, 3—4 metra frá grunninum,
°g hafði auðsjáanlega haldið þar til um nóttina. Þess má geta,
að daginn áður höfðu þeir leitað rækilega í þessum grunni, en
ekkert fundið.
hessi saga er vottfest af þeim félögum bóðum, Jóhanni og
Níelsi.
liudduhvarfið.
hessa sögu segir Aðalsteinn Jónasson í Hvammi, og er hún
hér skráð rétt að efni en lítið eitt stytt.
bað var i sláturtíð á Þórshöfn haustið 1913, að hjá mér var
1 sláturvinnu. Vigfús Jósefsson, bóndi að Kúðá í Ihstilfirði.
Uag einn fór hann að vanda úr treyju sinni um morguninn
°g lagði hana frá sér á húsgrunn. 1 vasanum var þá peninga-
hudda hans og i henni kr. 17,10 í peningum. Klukkan 4 um
daginn greiddi hann maimi nokkrum 1 krónu úr buddunni og