Morgunblaðið - 08.09.2010, Side 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2010
Gítarnámskeið
12 einkatímar fyrir alla aldurshópa.
Hefst 20. september
Innritun er hafin í síma 581 1281
www.gitarskoli.is
gitarskoli@gitarskoli.is
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
„Ég held að þetta sé mikil hvatning til stjórnmálamanna
og fulltrúa fyrirtækja um að fara að spýta í lófana,“ segir
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra um yfirlýsingu Sam-
orku sem hefur áhyggjur af stöðu jarðhitarannsókna.
„Ég tek því undir með þeim, það er auðvitað mjög vont ef
þessi sérfræðiþekking fer í einhverjum mæli úr landi. Á
móti kemur að það er kostur ef íslensk fyrirtæki fá verk-
efni erlendis. Þetta er tvíbent, okkur veitir ekki af gjald-
eyrinum og líka gott að menn fái fjölbreytta reynslu.“
Hún segir að nú þurfi að fara að komast mynd á það
hvernig ákveðin stór jarðhitasvæði á Norðurlandi verði
nýtt, þau mál séu í vinnslu. Orkuveita Reyjavíkur þurfi
að fjármagna sína virkjunarkosti en það hafi reynst
henni erfitt. „Mestu skiptir að enginn aðili láti
nægja að benda á einhvern annan, allir þurfa að
taka sig á,“ sagði iðnaðarráðherra. kjon@mbl.is
Allir sem komi að jarðhita-
rannsóknum spýti í lófana
Katrín Júlíusdóttir tekur
undir með Samorku
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Reykjaneshöfn hefur ekki getað greitt 130
milljónir af lánum sem voru á gjalddaga 1. maí
sl. Milljónirnar 130 hafa því verið í vanskilum
síðan. Lánin fékk höfnin hjá nokkrum lífeyr-
issjóðum.
Pétur Jóhannsson hafnarstjóri segir að
væntanlega muni lóðagjöld vegna kísilvers og
álvers skila höfninni um 500 milljónum á þessu
ári. Þannig verði hægt að greiða af lánunum.
Verði ekki af leigu lóðarinnar til kísilversins
gæti tapið á hinn bóginn numið um 500 millj-
ónum á þessu ári. Höfnin skuldar um 5,6 millj-
arða og tapaði um 500 milljónum í fyrra, skv.
ársreikningi 2009.
Reykjaneshöfn er í afar erfiðri stöðu, líkt og
ársreikningur 2009 ber með sér. Í sérstakri
ábendingu frá endurskoðendum hafnarinnar
segir að ljóst sé „að rekstur félagsins getur
ekki einn staðið undir afborgunum skulda
næstu 12 mánuði. Félagið mun þurfa nýjar lán-
veitingar til að standa við skuldbindingar sínar
eða aukin framlög frá Reykjanesbæ“. Endur-
skoðendurnir benda á að Reykjanesbær beri
fulla og ótakmarkaða ábyrgð á skuldbinding-
um hafnarinnar. Skuldir hennar lenda sem
sagt á bæjarfélaginu, takist henni ekki að
greiða þær.
Búið að breyta helmingi skamm-
tímaskulda þessa árs í langtímaskuldir
Á þessu ári þarf Reykjaneshöfn að greiða
um 480 milljónir af skammtímaskuldum. Á ár-
unum 2011-2014 nema afborganir skammtíma-
skulda að meðaltali um 440 milljónum á ári.
Reykjanesbær og höfnin hafa í sameiningu
unnið að endurfjármögnun skulda. Um helm-
ing skammtímaskulda sem átti að greiða á
þessu ári hefur verið samið um og breytt í lang-
tímalán. Að sögn Péturs strandar endurfjár-
mögnunin að öðru leyti á því að framkvæmdir
við álver hafa ekki hafist af fullum krafti.
Pétur er afar vongóður um að af byggingu
kísilversins verði, enda sé fjármögnun þess í
höfn. „Við erum búnir að semja við þá, við er-
um bara að bíða eftir að þeir gangi frá samn-
ingi um raforkukaup. Þetta hangir mjög á
orkunni,“ segir Pétur. Kísilverið dugar þó ekki
til og ljóst má vera að höfnin þarf tekjur frá ál-
verinu til að standa undir skuldum og ríkis-
styrk sem höfnin væntir þess að fá vegna
hafnaframkvæmda.
Á undanförnum árum hefur höfnin varið um
1,3 milljörðum í að dýpka höfnina og reisa
varnargarð, í þeim tilgangi að geta verið höfn
fyrir álverið. Framkvæmdirnar voru liður í
samkomulagi við Norðurál um byggingu ál-
versins. Pétur segir að skilningur hafnarinnar
sé sá að ríkið eigi að greiða um 900 milljónir af
þeirri fjárhæð. Ríkisvaldið hafi ekki samþykkt
þessar fjárveitingar enn sem komið er.
Um 130 milljónir í vanskilum
Reykjaneshöfn getur ekki greitt um 130 milljónir sem voru á gjalddaga 1. maí Selur lóð undir kísil-
ver og treystir á tekjur frá álveri Skuldar 5,6 milljarða Án kísilvers mun tap nema 500 milljónum
Morgunblaðið/Ásdís
Tekjur Rekstur Reykjaneshafnar veltur á
álveri, líkt og rekstur Reykjanesbæjar.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna
gagnrýndu og sögðu afar ámælisvert að hvorki borgar-
stjóri né formaður borgarráðs hefði verið viðstaddur
umræðu um aðgerðaáætlun borgarinnar á fundi borg-
arstjórnar í gær. Jón Gnarr borgarstjóri fór á ráð-
stefnu í Brussel eftir hádegi í gær til að kynna verk-
efnið Reykjavík – Græn borg. Sést hann yfirgefa fund
borgarstjórnar á myndinni.
Morgunblaðið/Golli
Fjarvera gagnrýnd í borgarstjórn
Samorka segir fjölda sérhæfðs starfsfólks að und-
anförnu hafa verið sagt upp hjá fyrirtækjum í jarð-
hitanýtingu. Þá sé verið að undirbúa flutning bora
úr landi. „Þessar tafir geta aðeins leitt til þess að
sérþekking í rannsóknum og orkunýtingu hér-
lendis glatast, sem hefur í för með sér að í framtíð-
inni verða framkvæmdir dýrari og flóknari en ella
og verulega mun draga úr nauðsynlegum rann-
sóknum og þróun á jarðhitakerfum lands-
ins,“ segir í ályktun stjórnar Samorku í
gær.
Sérþekking að tapast
ÁHYGGJUR SAMORKU
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Slæmt veður setti strik í opinbera
heimsókn Jóhönnu Sigurðardóttur
forsætisráðherra til Færeyja í gær.
Til stóð að ráðherrann færi út í eyj-
una Koltur vestur af Straumey en í
staðinn voru skoðuð mannvirki við
bryggjuna á Velbastad. Jóhanna
skoðaði að sögn færeyskra fjölmiðla
m.a. höfuðstöðvar bruggfyrirtækisins
Okkara og bragðaði á miðinum.
Síðan fór Jóhanna í Norræna húsið
í Þórshöfn og þar næst í Listasafnið
og Fornminjasafnið. Dagskránni lauk
með kvöldverði í Kirkjubæ á Straum-
ey í boði forsætisráðherra Færeyja,
Kaj Leo Johannesen.
Í dag snæðir Jóhanna morgunverð
í Þinganesi með íslenskum gestum og
fulltrúum færeysku stjórnarinnar. Að
því loknu fundar hún með Johann-
esen en heldur heim seinnipartinn í
dag.
Þingmaður hundsaði kvöldverð
Írafár varð í Færeyjum vegna um-
mæla þingmanna sem sögðu heim-
sókn Jóhönnu og eiginkonu hennar,
Jónínu Leósdóttur, vera „ögrun“.
Einn þeirra, Jenis af Rana, berst
ákaft gegn réttindum samkyn-
hneigðra. Jenis, sem er leiðtogi kristi-
lega Miðflokksins, segir hjónabönd
samkynhneigðra brjóta í bága við
vilja Guðs. Jenis afþakkaði boð í
kvöldverðinn til heiðurs Jóhönnu þar
sem hún yrði þar með eiginkonu sinni.
Haft var einnig eftir Gerhard
Lognberg, þingmanni í Javnaðar-
flokkurin, systurflokki Samfylkingar-
innar, á vef Nordlysid að hann liti á
heimsókn Jóhönnu sem ögrun.
Kaj Johannesen var harðorður um
framkomu Jenis, hann ætti að
skammast sín. Högni Hoydal, for-
maður Þjóðveldisflokksins í Færeyj-
um, gagnrýndi einnig Jenis harðlega.
Magni Laksáfoss, þingmaður Sam-
bandsflokksins, fordæmdi skoðanir
Jenis. „Ég tel að þetta hafi ekkert
með Jóhönnu að gera. Ég held að
hann sé að hlúa að sínum eigin at-
kvæðum,“ sagði Laksáfoss.
Skoðaði brugghús
og söfn í Færeyjum
Ljósmynd/Álvur Haraldsen
Málið útskýrt Jóhanna og Kaj Jo-
hannesen í brugghúsi Okkara.
Heimsókn forsætisráðherra lýkur í dag