Morgunblaðið - 08.09.2010, Blaðsíða 7
Fréttir 7INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2010
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
51
32
1
09
/1
0
ALLT
Í RÆKTINA
HAUSTVÖRURNAR 2010
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND WWW.UTILIF.IS
Stærsta skemmtiferðaskipið, sem
hingað kemur í sumar, er vænt-
anlegt til Reykjavíkur í dag.
Skipið heitir Crown Princess og
er 113.651 lestir að stærð. Áformað
er að það leggist að Skarfabakka í
Sundahöfn klukkan 13 og láti úr
höfn klukkan 19. Farþegar eru á
fjórða þúsund talsins og 1.200
manns eru í áhöfninni. Skipið kom
hingað í byrjun ágúst og er nú í loka-
ferð sinni hingað í sumar.
Komum skemmtiferðaskipa til
landsins fer nú fækkandi. Það síð-
asta er væntanlegt 3. október. Það
skip heitir Grand Princess og er
tæplega 109 þúsund lestir að stærð.
sisi@mbl.is
Risaskip í
Sundahöfn
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Farið var í gær yfir undirbúning stór-
framkvæmda í vegagerð á fjölmenn-
um fundi forsvarsmanna lífeyris-
sjóða, samgönguráðuneytis,
fjármálaráðuneytis, Vegagerðarinnar
og Saga Capital, sem sér um ráðgjöf
vegna verkefnanna.
Um er að ræða framkvæmdir fyrir
38 milljarða á næstu fimm árum.
Ögmundur Jónasson samgöngu-
ráðherra greindi frá því á fundinum
að forveri hans í ráðherraembættinu,
Kristján Möller, hefði tekið að sér að
fylgja þessum málum eftir fyrir hönd
ráðuneytisins að ósk Ögmundar.
Eftir fundinn með fulltrúum ríkis-
ins í gær héldu forsvarsmenn lífeyr-
issjóðanna áfram fundarhöldum til að
fara yfir verkefnið. Enn er alveg
ósamið um og ófrágengið hver vaxta-
kjör verða á hugsanlegri fjármögnun
sjóðanna.
Verkefnin sem
um er að ræða er
breikkun kafla á
Vesturlandsvegi,
breikkun Suður-
landsvegar, ljúka
á við tvöföldun
Reykjanesbraut-
ar, smíði brúar yf-
ir Ölfusá og svo
gerð Vaðlaheiðar-
ganga.
Hægt er að ráðast í undirbúning
útboða mjög fljótlega ef samningar
takast um fjármögnun og þá yrði ráð-
ist í framkvæmdir á næsta ári að sögn
Ögmundar.
Góður tónn í lífeyrissjóðunum
„Þetta var einskonar kynningar-
fundur,“ segir Ögmundur. „Mér líst
mjög vel á fyrirkomulagið eins og það
er að þróast. Þetta er alls ekki einka-
framkvæmd, heldur erum við að tala
um fjármögnun og framkvæmdir sem
eru algerlega á vegum ríkisins, a.m.k.
hér á suðvesturhorninu,“ segir Ög-
mundur.
Lífeyrissjóðirnir ráða ráðum sínum
á næstu vikum og vega og meta hvort
þeir leggja fjármagn í framkvæmd-
irnar. Má reikna með að ákvörðun
forsvarsmanna þeirra geti legið fyrir í
þessum mánuði.
„Þarna erum við að tala um at-
vinnusköpun sem skiptir verulegu
máli auk þess sem við horfum til verk-
efna sem auka umferðaröryggi og eru
arðsöm fyrir samfélagið. Mér hefur
fundist tónninn í lífeyrissjóðunum
vera góður, enda er að mínu mati
mjög mikilvægt að veita fjármunum
úr lífeyrissjóðunum í uppbyggingu
innra stoðkerfis samfélagsins, vel-
ferðarþjónustuna og ekki síður vega-
kerfið. Þetta eru vel geymdir pening-
ar fyrir lífeyrissjóðina að mínum
dómi, en það er að sjálfsögðu þeirra
að ákveða hvað þeir gera,“ segir Ög-
mundur.
38 milljarðar í 5 ára verk
Kristján Möller fylgir verkefninu eftir fyrir hönd samgönguráðherra Óráðið
er á hvaða vaxtakjörum lífeyrissjóðum býðst að fjármagna vegaframkvæmdirnar
Veggjöld
» Stofna á hlutafélag í eigu
ríkisins um framkvæmdirnar
við Suðurlands- og Vestur-
landsveg og tvöföldun Reykja-
nesbrautar.
» Félagið aflar svo tekna með
innheimtu veggjalda.
» Sérstakt hlutafélag verður
stofnað um gerð Vaðlaheið-
arganga ef samkomulag næst
um að ráðast í þá framkvæmd.
» Samgöngumannvirkin verða
hluti af opinberu vegakerfi sem
Vegagerðin beri ábyrgð á.
» Fjármagna á framkvæmd-
irnar með útgáfu skuldabréfa
sem á að fá skráð í Kauphöll-
inni.
Ögmundur
Jónasson