Morgunblaðið - 08.09.2010, Side 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2010
Jafnaðarmenn í Svíþjóð eru í mikl-um pólitískum vandræðum. Áð-
ur stjórnuðu þeir því landi kjör-
tímabilum saman, annaðhvort fyrir
eigin afli eða vegna hlutleysis lítils
flokks vinstra megin við þá. Nú
mælist fylgi þeirra aðeins tæplega
28 prósent.
Núverandi for-maður Jafn-
aðarmanna,
Mona Sahlin er
með nokkuð
skrautlegan feril
og varð í tvígang
að gera hlé á
setu í forystu-
sveit krata vegna
vandræðamála sem hún flækti sér í.
Annað málið, sem þótti mjög al-varlegt þar í landi, snerist um
misnotkun hennar í persónulega
þágu á greiðslukorti sem hún hafði
til afnota sem ráðherra.
Ýmsir fréttaskýrendur halda þvíreyndar fram að það erfiða mál
sé enn að þvælast fyrir flokks-
formanninum og sé helsta ástæða
þess að hana skorti trúverðugleika.
Fjárhæðirnar sem málið sneristum voru ekki háar, nokkrir tug-
ir eða hundruð þúsunda. En talið
var að þar sem ráðherrann var ekki
trúr í smáu væri hæpið að treysta
honum fyrir þjóðarhagsmunum.
Fróðlegt væri að vita hvort slíkmál hefðu komið upp hér á
landi og jafnvel í mun stærri stíl en
hjá sænska kratanum. Og hvort
slíkur aðili yrði talinn geta farið
með ráðherradóm.
Að vera eða vera ekkiWilliam Shakespeare spurði
forðum
að vera eða vera ekki,
er vinstri stjórn í fáum orðum.“
(G.Th.)
Mona Sahlin
Siðferðiskröfur þar og hér
Veður víða um heim 7.9., kl. 18.00
Reykjavík 14 léttskýjað
Bolungarvík 16 léttskýjað
Akureyri 19 heiðskírt
Egilsstaðir 13 skýjað
Kirkjubæjarkl. 12 skýjað
Nuuk 12 heiðskírt
Þórshöfn 11 skýjað
Ósló 16 heiðskírt
Kaupmannahöfn 15 léttskýjað
Stokkhólmur 16 heiðskírt
Helsinki 16 skýjað
Lúxemborg 15 skúrir
Brussel 18 léttskýjað
Dublin 13 léttskýjað
Glasgow 17 léttskýjað
London 17 léttskýjað
París 20 skýjað
Amsterdam 12 skýjað
Hamborg 16 léttskýjað
Berlín 16 skýjað
Vín 13 alskýjað
Moskva 12 heiðskírt
Algarve 25 léttskýjað
Madríd 22 léttskýjað
Barcelona 27 léttskýjað
Mallorca 27 léttskýjað
Róm 26 skýjað
Aþena 25 léttskýjað
Winnipeg 11 alskýjað
Montreal 21 skýjað
New York 27 heiðskírt
Chicago 21 léttskýjað
Orlando 28 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
STAKSTEINAR
VEÐUR KL. 12 Í DAG
8. september Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:31 20:21
ÍSAFJÖRÐUR 6:31 20:31
SIGLUFJÖRÐUR 6:14 20:14
DJÚPIVOGUR 5:59 19:51
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Úrskurðarnefnd um upplýsingamál
hefur staðfest synjun samgöngu-
ráðuneytisins um að neita að veita
aðgang að viðskiptaáætlun fyrirhug-
aðrar samgöngumiðstöðvar í Vatns-
mýri. Nefndin féllst á að slíkt gæti
skaðað samkeppnishagsmuni Isavia,
sem er opinbert hlutafélag.
Samgönguráðuneytið og Isavia
höfnuðu beiðni Morgunblaðsins um
að fá áætlunina afhenta í maí sl. og
var synjunin kærð til nefndarinnar.
Af hálfu blaðsins var m.a. bent á
að kostnaður við samgöngu-
miðstöðina verður greiddur af far-
þegum í innanlandsflugi og öðrum
sem nýta sér þjónustu fyrirtækja
sem leigja þar aðstöðu, enda hefur
komið fram að greiða á fyrir bygg-
inguna með notendagjöldum og með
því að leigja út hluta miðstöðv-
arinnar. Þar að auki vonast Isavia og
samgönguráðuneytið til þess að líf-
eyrissjóðir láni fé til fram-
kvæmdanna. Því væru sérlega ríkir
hagsmunir af því að birta upplýs-
ingar um rekstrargrundvöll.
„Til sambærilegra nota“
Úrskurðarnefndin vísað frá
kærunni hvað Isavia varðar, þar sem
upplýsingalög taki ekki til opinberra
hlutafélaga.
Upphaflega vísaði samgöngu-
ráðuneytið til þess að því væri
óheimilt að afhenda gögn sem varða
mikilvæga hagsmuni fyrirtækja eða
einkaaðila. Úrskurðarnefndin benti
þá ráðuneytinu á að Isavia væri op-
inbert fyrirtæki. Ráðuneytið leið-
rétti þá fyrri vísun í lögin og vísaði í
staðinn til þess að heimilt væri að
takmarka aðgang að upplýsingum
sem ættu við um viðskipti stofnana
og fyrirtækja í eigu ríkis eða sveitar-
félaga, að því leyti sem þau væru í
samkeppni við aðra.
Ráðuneytið benti m.a. á að
rekstur samgöngumiðstöðvarinnar
ætti að byggjast á leigutekjum.
„Samgöngumiðstöðin er því í sam-
keppni við aðra aðila sem leigja út
húsnæði til sambærilegra nota. Um-
beðin gögn tengjast beint þessari
starfsemi samgöngumiðstöðv-
arinnar þar sem þar er að finna fjár-
hagslegar upplýsingar er varða
áætlaðar tekjur vegna leigu rekstr-
araðila ásamt tekjum vegna brott-
farargjalda.“ Samkeppnishagsmunir
Isavia við rekstur miðstöðvarinnar
væru svo verulegir að þeir gengju
framar rétti almennings að upplýs-
ingunum.
Nefndin féllst á þessi rök með
úrskurði 1. september sl.
Ábyrgð Isavia hefur verið falið að undirbúa byggingu miðstöðvarinnar
og mun bera ábyrgð á rekstri hennar. Skipulagi vegna hennar er ólokið.
Morgunblaðið/ÞÖK
Samgöngu-
miðstöð verður
í samkeppni
Viðskiptaáætlun ekki afhent vegna
mikilvægra samkeppnishagsmuna
Utan laganna
» Ef rekstrarformi opinberrar
stofnunar hefur verið breytt í
hlutafélagsform fellur hluta-
félagið sem slíkt utan gildissviðs
upplýsingalaga, jafnvel þótt það
sé að öllu leyti í eigu ríkis eða
sveitarfélags, nema því hafi ver-
ið falið sérstakt stjórnsýslu-
hlutverk, þ.e. að taka ákvarðanir
um rétt eða skyldu manna.
» Isavia ohf. fellur undir
þessa skilgreiningu.
„Stórauknar fjárfestingar eru forsenda hag-
vaxtar á næstu árum,“ segir í ályktun fram-
kvæmdastjórnar Samtaka atvinnulífsins frá því
í gær. Þar segir einnig að stórfjárfestingar í at-
vinnulífinu dragist enn og ríkisstjórnin verði að
taka afgerandi pólitíska forystu til þess að af
þeim verði.
„Samtök atvinnulífsins vilja vekja sérstaka
athygli á þýðingu fjárfestinga fyrir íslenskt
samfélag nú þegar afar misvísandi skilaboð um
hagþróun koma fram og skapa mikla óvissu um
þróun atvinnulífsins og efnahags þjóðarinnar.
Þróun á vinnumarkaði sýnir minnkandi at-
vinnuleysi og að fjöldi starfa á fyrri helmingi
þessa árs hafi verið svipaður og í fyrra. Í síð-
ustu viku birti Hagstofan svo aðrar tölur sem
gefa til kynna að afraksturinn af störfum þjóð-
arinnar hafi verið 7,3% samdráttur í landsfram-
leiðslu milli fyrri árshelminga 2009 og 2010 og
leiðrétti þannig niður á við fyrri tölur um hag-
vöxt í byrjun þessa árs og í lok þess síðasta,“
segir í tilkynningu frá SA.
Mestu skipti að ríkisstjórnin sýni skýran og
ótvíræðan vilja til þess að fjárfestingar í at-
vinnulífinu og innviðum samfélagsins aukist og
athafnir fylgi orðum.
Lítil og meðalstór fyrirtæki þurfa að hafa að-
gang að lánsfé á viðráðanlegum kjörum og
skattaleg kjör verða að vera þeim hagstæð svo
þau geti fjárfest. Stór fjárfestingaráform í at-
vinnulífinu, þ.e. í orkuframleiðslu og orkunýt-
ingu, verða að ná fram að ganga.
Fjárfestingar forsenda hagvaxtar
„Í ríkjum með áreiðanlegar hagtölur væri slíkt
framleiðniáfall í atvinnulífinu tilefni til neyðar-
viðbragða og rannsókna, en íslenskt atvinnulíf
þarf að búa við óvissu og óáreiðanlegar hag-
tölur. Skýr skilaboð þurfa að koma frá ríkis-
stjórninni um að allt verði gert til að eyða
þeirri óvissu sem hagtölur gefa til kynna og
benda til þess að staðan sé mun lakari en áður
var talið,“ segir í tilkynningu SA.
Óvissu verði eytt
TILEFNI TIL NEYÐARVIÐBRAGÐA