Morgunblaðið - 08.09.2010, Side 11
Morgunblaðið/Ernir
Hugbrot Garðar og Signý aðstoða fólk við að ná markmiðum með því að finna lausnir sem skila varanlegum árangri.
síast svo inn í undirmeðvitundina.
Þetta gerir þú einu sinni á dag í 21
dag og það hefur þau áhrif að þú
matreiðir undirmeðvitundina með
nýjum vönum og nýjum viðhorfum.
Diskurinn hjálpar þér að taka í
burtu fyrirstöður og losna við höml-
ur sem standa í vegi fyrir því að þú
náir árangri. Þetta kemur allt innan
frá.
Í vökuástandi er meðvitundin
gagnrýnandinn, ritskoðandinn, en í
djúpri slökun er ritskoðarinn eig-
inlega sofnaður og því fer þetta
beint inn. Því tileinkar þú þér ný
viðhorf miklu hraðar en í vöku-
ástandi. Milli svefns og vöku er
hugurinn móttæki-
legastur fyrir öllu
nýju,“ segir Garðar
og Signý bætir við;
„Á diskunum
eru myndlíkingar og
þegar þú ert komin í
djúpa slökun er það
eins og að vera í
draumi og þá ferðu í
undirmeðvitundina
og lagar það sem
þarf. Yfirleitt tekur fólk
ekki sjálft eftir því hvað hefur
breyst en aðrir taka eftir því.
Fólk veit best hvað er best fyr-
ir það sjálft, á diskunum er þér ekki
sagt hvað á að gera heldur virkjar
manneskjan sjálfa sig.“
Varð fyrir dulrænni reynslu
Garðar og Signý hafa bæði haft
áhuga á málefnum andans frá því
þau voru börn. Signý var meira í
dulspeki en sjálfsvinnu og Garðar
las bækur móður sinnar um málefni
hugans.
„Svo varð ég fyrir dulrænni
reynslu sem krakki sem setti end-
anlega punktinn yfir i-ið og kveikti
á áhuganum á þessum málum,“ seg-
ir Garðar. Hann vinnur við vefþjón-
ustu á meðan Signý sér um útgáfu
Hugbrot, þau eiga þrjár dætur.
„Diskarnir eru til sölu á netinu
og í versluninni Betra líf. Við erum
búin að þýða þetta yfir á sænsku og
erum að vinna í því að koma þessu
til Svíþjóðar. Diskurinn Losnað við
kílóin er vinsælastur enda er það
hugurinn sem fær þig til að hreyfa
þig ekki og borða óhollt og því er
það hugurinn sem þú þarft að byrja
á að breyta til að léttast,“ segir
Garðar að lokum og fylgir blaða-
manni til dyra. Þar tekur fagur
fuglasöngur við og náttúrufegurð
Mosfellsdalsins.
www.hugbrot.is
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2010
Sími 568 5170
HELENA RUBINSTEIN KYNNING
Í SNYRTIVÖRUVERSLUNNI Í GLÆSIBÆ
MIÐVIKUDAG TIL FÖSTUDAGS
Kynnum Prodigy Powercell dropana og nýja Lash Queen
Sexy Blacks maskarann
Kaupaukinn þinn* þegar þú kaupir 2 HR vörur:
- HR taska
- HR dagkrem 15 ml
- Prodigy næturkrem 5 ml
- Life Ritual andlitsvatn 50 ml
- Magic Concealer baugahyljari 3 ml
- All Mascaras augnfarðahreinsir 50 ml
Verðmæti kaupaukans allt að 15.500 krónur
Einnig aðrar gerðir kaupauka með förðunarbustum
HR GJAFADAGARNIR ÞÍNIR
*G
ild
ir
á
ky
nn
in
gu
nn
im
eð
an
bi
rg
ði
r
en
da
st
.G
ild
ir
ek
ki
m
eð
de
od
or
an
te
ða
bl
ýö
nt
um
.
Daglegt líf 11
„Hún er nýlega
orðin uppáhalds-
sultan mín því ég
er alltaf að prófa
eitthvað nýtt. Ég
get aldrei búið til
sömu sultuna
tvisvar,“ segir
Guðbjörg Guð-
jónsdóttir, Sel-
fyssingur og
sultugerðarkona,
spurð um uppá-
haldssultuna.
„Ég fór með mömmu í berjamó
og við tíndum nokkur kíló af blá-
berjum. Ég gerði þrjár tegundir af
bláberjasultu og ein þeirra er alveg
æðisleg og er mín uppáhalds. Hún
heitir frönsk bláberjasulta og fann
ég uppskriftina á gagnasafni Mbl.is.
Ég hafði reyndar ekki sykurmola,
bara venjulegan sykur. Það er ein-
stakur mildur keimur af sultunni og
hún er mjög góð ofan á ristað brauð
og vöfflur. Ég fékk sex krukkur af
henni en svo gerði ég tvær aðrar
bláberjasultutegundir, drottn-
ingasultu og bláberjahlaup. Ásamt
þeim gerði ég líka rabarbar-
achutney, svo það eru fjórar sultu-
tegundir til á mínu heimili eftir
þetta sumar,“ segir Guðbjörg.
Frönsk bláberjasulta
1 kíló bláber, hreinsuð
1 kíló sykurmolar
4 dl vatn
Berin eru sett í stóran pott og
hituð hægt að suðu. Þau eru látin
malla í 20 mínútur og hrært í þeim
af og til. Athugið að ekki skal setja
lok á pottinn. Þegar berin eru rétt
orðin meyr er potturinn tekinn af
hitanum. Gætið þess að sjóða berin
ekki í mauk. Sykurmolarnir eru
leystir upp í vatninu yfir lágum hita
í þykkbotna potti. Blandan er hituð
hægt að suðu en þegar hún er farin
að sjóða má ekki hræra í henni
heldur er beðið þar til áferðin verð-
ur gullin og karamellukennd. Þá er
blöndunni hellt yfir berin. Sykurinn
og berin eru hrærð saman yfir lág-
um hita í 8 til 10 mínútur. Þá ætti
sultan að vera tilbúin. Hún er sett í
tandurhreinar krukkur og kæld áður
en krukkurnar eru innsiglaðar.
Uppáhaldssulta Guðbjargar Guðjónsdóttur
Morgunblaðið/Eyþór
Bláberjasulta Meðal annars góð ofan á ristað brauð, kex og vöfflur.
Einstök frönsk bláberjasulta
Guðbjörg
Guðjónsdóttir
Talið er að freistingin til að fara
að versla sé sterkari en sú að sækja
kirkju jafnvel þó það skili minni
hamingju.
„Að versla er eiginlega ávana-
bindandi og þó það geri fólk ekki
hamingjusamara fer það samt að
versla og sleppir kirkjunni. Það er
hægt að fá ákveðna skyndifull-
nægju við það að versla sem er lík-
lega tekin fram yfir kostina við að
fara í kirkju, sem gætu samt talist
meiri yfir lengra tímabil litið,“ seg-
ir dr. Sander.
Reuters
Sunnudagar Það færir fólki meiri hamingu að fara í kirkju en verslanir.
Nýjasti diskurinn hjá Hugbroti
heitir Meðganga og fæðing og
vann Signý hann frá upphafi til
enda.
„Ég notaði þessar aðferðir í
seinni fæðingunni því ég var svo
logandi hrædd í fyrri fæðing-
unni og bað um allar deyfingar. Í
þeirri seinni var ég meira und-
irbúin og slakaði á og
notaði engar deyf-
ingar. Þá bjó ég til
þennan disk og notaði
aðferðirnar sem eru
kenndar í Hugeflisbók-
inni sem Garðar gaf út.
Diskurinn byrjar á
þægilegri tónlist með
djúpslökun til þess að
róa huga og líkama.
Konan er síðan leidd
hægt og rólega í gegnum
sérstakt ofurnámsferli þar sem
hún lærir að undirbúa sig and-
lega og tilfinningalega fyrir
fæðinguna og umönnun barns-
ins. Með reglulegri hlustun auð-
veldar diskurinn konum að tak-
ast á við þær miklu breytingar
sem fylgja meðgöngu og fæð-
ingu. Þegar konur eru óléttar
eru þær oft mikið viðkvæmari
og þetta er innlegg í það hvern-
ig þær hugsa til barnsins og
fæðingarinnar sjálfrar.“
Andlegur
undirbúningur
MEÐGANGA OG FÆÐING